Það eru komnar inn nokkrar myndir frá kvöldfundinum síðasta, við vorum bara 5 en áttum góða stund.
30 nóvember 2009
18 nóvember 2009
Frestun saumasunnudags
Sælar kæru Búskur!
Af óviðráðanlegur orsökum verður við að hætta við saumasunnudaginn sem vera átti næstkomandi sunnudag 22. nóvember.
Þess í stað verður venjulegur saumafundur mánudaginn 23. nóvember - húsið verður opnað kl. 18:30
Vonumst til að sjá sem flestar.
Kveðja, Jóhanna, Helga B, Anna Sigga og Ebba.

21 september 2009
Dagskrá Búsknanna 2009 - 2010
Við erum komnar með beinagrind að dagskrá næsta starfsárs, set hana hér inn en dagsetning í febrúar gæti breyst. Við sendum hana svo út í tölvupósti til allra netvæddra og í sniglapósti á hinar þegar við höfum fengið dagsetningu á saumahelgina okkar í mars.
Vakin er athygli á að fyrsti fundurinn byrjar kl. 19:00 en ekki 18:30 eins og verið hefur.
Mánudagur 19. október - kl: 19:00 - 23:00
kvöldfundur á Löngumýri.
Sunnudagur 22. nóvember - kl: 10:00 - 16:00
saumasunnudagur á Löngumýri
Þriðjudagur 19. janúar 2010 - kl: 18:30 - 22:30
kvöldfundur á Löngumýri.
Miðvikudagur 17. febrúar 2010 - kl: 18:30 - 22:30
Kvöldfundur á Löngumýri
Aðra eða þriðju helgina í mars - saumahelgi á Löngumýri, með Bútós og Kristrúnu. Alveg óráðið með þessa helgi.

15 september 2009
Miklabæjarkirkja - alltaf í leiðinni
Fyrsti fundur lofaði góðu, sautján konur mættu í Miklabæjarkirkju til að fræðast um stórverkefni Akrahreppskvenna, altaristöfluna í kirkjunni. Svanhildur Pálsdóttir sagði okkur frá tilurð altaristöflunnar og lýsti framgangi hönnunar og síðan vinnunni við verkið, sem vígt var í sumar.Ég skora bara á ykkur allar áhugakonur um bútasaum, komið við í kirkjunni og lítið á teppið.
Glæsilegt í alla staði og vekur aðdáun á eljusemi og dugnaði þessara eldhuga sem verkið unnu.
A.m.k. eitt hundrað sinnum komu þær saman til skrafs og ráðagerða, stundum bara tvær, stundum fleiri og stundum allar.
Að skoðunarferðinni lokinni settumst við inn á Hótel Varmahlið spjölluðum um vetrardagskrána. Hún er í vinnslu en verður sett hér inn um leið og komin er niðurstaða á fastar dagsetningar, á eftir að ræða við Gunna á Löngumýri og slíkt.
Næstu 5 helgar er Kristrún og staffið í Quiltbúðinni með saumahelgar á Löngumýri, ef helgar skildi kalla, því sumar mæta á fimmtudegi, tekur því varla fyrir þær stöllur að fara heim á milli.
Amk 10 Búskur hafa skráð sig á saumahelgi hjá Kristrúnu.
06 september 2009
Fyrsti fundur starfsársins - frekari upplýsingar
Fyrsti fundur haustins verður mánudaginn 14. september.
Við byrjum á að skoða altaristeppið í kirkjunni á Miklabæ, Svana verður leiðbeinandi í þeirri ferð. Fáum okkur svo kaffi og með´ví á Hótel Varmahlíð og skipuleggjum starf vetrarins.
Mæting við Hótel Varmahlíð kl. 19:30
Nú mætum við allar og bjóðum með okkur nýjum félögum.
Anna Sigga, Ebba, Jóhanna og Helga

Fyrsti fundur starfsársins
Fyrsti fundurinn í haust er fyrirhugaður mánudaginn 14. september og ráðgert er að fara í Miklabæjarkirkju og skoða altaristöflu bútasaumskvenna í Akrahreppi og Svana kæmi þá með okkur til að kynna verkið. Nánari upplýsingar verða settar inn þegar málið er í höfn.
27 júní 2009
Myndir komnar inn
Loksins tókst mér að hlaða inn myndunum frá Vildarvinahelginni hjá Bútós á Blönduósi. Eitthvað ólag á myndasíðunni, en njótið vel.
11 maí 2009
Bútósgleðin
Já, já, það var engin lognmolla á saumahelginni á Blönduósi í þetta skipti, frekar en fyrri daginn.
Allar svo glaðir og kátir með bútana sína og saumavélarnar allt um kring, já og aldrei þessu vant fengum við nóg að borða.
Skoppa og Skrýtla höfðu að sjálfsögðu farið í búrið hjá betri bændum í héraðinu og fóru svo sannarlega ekki tómhentar þaðan út. Við hinar dunduðum við að leggja á borð og í mesta lagi skera niður grænmeti annars var allt fyrirfram tilbúið. Gugga Páls er alltaf góð í pungunum, sérlega vel lagaðir hjá henni, Anna Margrét bauð okkur að smakka skyrbrauðið sitt og í fingurbjörg af þessu líka dásamlega krækiberjavíni.
Svona rétt inn á milli máltíða var skorið og saumað, straujað og stungið, rakið pínu upp, enn ekki samt mikið. Óvissuverkefni var tilsniðið og lagt upp í hendurnar á okkur, alltaf gaman að svoleiðis.
Af Búskum vorum við: Helga Har, Ebba, Anna Sigga, Stefanía og Helga Bergs.
Anna Bjarka og Ragga komu frá Akureyri og Mæja frá Borgarnesi, tvær úr Borginni þurftu að snúa við á Holtavörðuheiðinni og urðu því af gamninu.
Þetta var alveg frábærlega gaman og þakkir skulu þær fá, þær Skoppa og Skrýtla fyrir framtaksemina svo nú ekki sé minnst á þær sem bjuggu um okkur í kotum sínum.
Myndir birtast innan tíðar frá herlegheitunum á myndasíðunni okkar.

27 apríl 2009
Saumahelgi á Blönduósi
Bútós á Blönduósi býður félagskonum á saumahelgi 8.-10. maí
Þið sem hafið fengið póst vinsamlegast tilkynnið af eða á sem fyrst.
Þetta verður síðasta samkoman hjá okkur á þessu vori.
Félagskonur teljum við vera þær sem hafa greitt félagsgjald og eru virkir félagar í Búskunum.
Ef þú ert í vafa kíktu þá á félagalistann hér til hliðar.
Ef einhver telur að sig vanti á listann, hafi sú hin sama samband við Helgu Bergs sem fyrst.
Jóhanna, Ebba, Anna Sigga og Helga B

30 mars 2009
Kvöldfundur Löngumýri 31. mars
Minni á saumafundinn á Löngumýri annað kvöld 31. mars kl. 18:30 ef veður leyfir.
16 mars 2009
Saumasunnudagurinn
Flottur saumadagur hjá okkur á Löngumýri.
Fyrstu konur voru mættar fyrir níu og síðustu fóru ekki fyrr klukkan var langt gengin í sex.
Það var saumað og saumað, skorið og straujað, spjallað og hlegið. Við fórum í mat til Svönu í hádeginu og fengum þennan líka gómsæta indverskja kjúkling með hrísgrjónum, mangómauki, kókosmjöli, banönum, ristuðum möndlum og gúrkusósu.

11 mars 2009
Saumasunnudagur 15. mars
Saumasunnudagur á Löngumýri þann 15. mars
Við opnum húsið kl. 9:00 og höfum opið til ca. 17:00
Í hádeginu förum við í mat til Svönu á Hótel Varmahlíð verð kr. 2.500 á manninn. Við þurfum ekkert að borga fyrir aðstöðuna á Löngumýri í þetta sinn vegna tilfæringanna með okkur í vetur.
Við þurfum að fá upplýsingar um hvað margar ætla sér að borða hádegismat.
Ef konur mæta snemma er etv upplagt að taka með sér eitthvað smáræði með morgunkaffinu.
Við höfum boðið Bútóskonum að koma og sauma með okkur og einhverjar hafa tilkynnt komu sína. Eins buðum við Kristrúnu og co að koma en hún er á námskeiðiði sunnan heiða þessa helgi.
Sjáumst svo hressar og kátar.

24 febrúar 2009
Saumasunnudagur 15. mars
Við opnum húsið kl. 9 að morgni og höfum opið til amk. kl. 17:00
Endilega taka með sér vinkonur og kynna þær fyrir bútasaumnum. Ekkert gjald er tekið fyrir daginn nema kostnaður við hádegisverð sem verður að öllum líkindum á Hótel Varmahlíð hjá Svönu.

23 febrúar 2009
Prjónakaffi
Auglýsing frá prjónakonum og áhugafólki um handverk.
Prjónakaffi verður í Húsi Frítímans á Sauðárkróki á fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 19:30
Allir velkomnir.
Prjónakaffi verður í Húsi Frítímans á Sauðárkróki á fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 19:30
Allir velkomnir.
Saumasunnudagur 15. mars
Nú fer að líða að saumasunnudegi - hann var settur upp þann 8. mars n.k. - en vegna aðstæðna á Löngumýri - ætlum við að færa hann til sunnudagsins 15. mars. Og við erum að bíða eftir svari frá Gunnari um að byrja fyrr, eða kl. 09:oo og vera til kl. 17:oo ef konur vilja. Þá erum við líka að kanna hvort Svana á Hótel Varmahlíð getur gert okkur eitthvert tilboð í hádegismat - og erum við að meina að fara þangað til hennar í mat. Þetta er ágætis tilbreyting frá þessari hefbundnu heimatilbúnu súpu og salati:):) Ef af því verður - þurfa konur að láta vita hvort þær ætli að mæta, svo við höfum einhverja tölu handa Svönu. Við auglýsum þetta aftur er nær dregur. Þá höfum við haft samband við konur á Blönduósi og Skagaströnd og einnig Kristrúnu í Quiltbúðinni og boðið þeim að koma í heimsókn og sauma með okkur. Og endilega ef þið vitið um einhverjar sem vilja koma - látið þær vita - því fleiri því skemmtilegra.
05 febrúar 2009
Kvöldufundur þriðjudaginn 10. febrúar
Þriðjudagur 10. febrúar - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga eða aðra sem áhuga hafa.
Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði.
Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar.
Sýna og segja frá.

Auglýsing frá Þórdísi í Hérðasbókasafninu
Takið eftir - Nýjar handvinnubækur
Mikið úrval af nýjum, fallegum og mjög spennandi handavinnubókum, einkum bútasaums- og prjónabókum, s.s. Kaffe Fassett, Marti Michell, Debbie Bliss, Rowan, Kim Hargreaves og fl.
Allar bækurnar á 10 daga láni
Lítið endilega við
Héraðsbókasafnið
22 janúar 2009
Myndir komnar inn
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)