12 febrúar 2007

Ferðatöskusýningin

Við verðum með Ferðatöskusýninguna á laugardaginn á Löngumýri.

08 febrúar 2007

Saumalaugardagurinn nálgast

Jæja, allar saumaglaðar konur...

Þá er að fara að setja sig í saumastellingarnar því saumadagurinn nálgast.

Eitthvað verða þær færri Bútós konurnar á Blönduósi en til stóð, ekkert við því að gera.
Kristrún í Quiltbúðinn ætlar að koma og sauma með okkur.
Hún verður ekki með "búð "með sér, en ef einhverja vantar eitthvað af efnum eða annað er bara að hafa samband við hana og hún grípur þetta með sér fyrir eitt orð.

En og aftur.... áríðandi að láta einhverja okkar vita um mætingu, því eins og áður, við þurfum að vita hvað á að elda mikið af graut.

Hittumst á Löngumýri 17. febrúar í saumastuði.
Jóhanna, Helga, Anna Sigga og Sólveig.