11 desember 2006

Vordagskráin 2007




Það er bara að smella á dagsskána til að stækka hana.


05 desember 2006

Flottur jólafundur

Jólafundurinn tókst með afbrigðum vel.
Tólf konur komu sér vel fyrir í sófunum, nutu þess að maula piparkökur og drekka jólate í rólegheitunum á Löngumýri.

Við kynntum vordagskrána og bjálkakofaþema sem er samvinnuverkefni næstu annar, hver kona saumar eina blokk í grænum og dröppuðum tónum, sem settar verða saman í teppi. Allar fengu rauða bútinn í miðjunni til að vinna útfrá, sjá mynd.
Þær sem ekki gátu mætt og vilja vera með í þessu verkefni hafi samband við Jóhönnu Björns til að fá rauða bútinn sinn.

01 desember 2006

Jólafundurinn 5. des kl. 20:00

Bara að minna á jólafundinn þriðjudaginn 5. desember
kl: 20:00 – 22:00

28 nóvember 2006

Muna að skrá sig

Nú njótum við notalegrar jólastemmingar á Löngumýri.
Jólagóðgæti í gogginn (þarf ekkert að hafa með sér) – kertaljós og svo sýnið þið okkur náttúrulega hvað þið ætlið að gefa tengdó í jólagjöf (svo við getum nú apað það eftir!!!)

Jólagjafaskipti –
Komið með litlar handgerðar gjafir, bútasaumaðar eða eitthvað annað bútasaumstengt.
Gjafirnar verða númeraðar, hengdar upp til sýnis og loks dregnar út, og þá verður sko kátt í höllinni.

Janúarfundur - bjálkaþema - hugmynd kynnt.

19 nóvember 2006

Jólafundur 5. desember

Jólafundurinn okkar verður 5. desember frá kl. 20.00 - 22.00
Muna eftir að skrá sig hjá einhverri okkar á þann fund.

12 nóvember 2006

Notalegur saumasunnudagur

Þá er þessum notalega saumasunnudegi lokið.
Tíu Búskur mættu hressar og kátar með allt sitt hafurtask.
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, fyrrum Búska kíkti í heimsókn, Kristrún í Quiltbúðinni kom með fullan bíl af efnum og bættum við flestar vel í safnið.
Myndir frá deginum komnar á myndahlekkinn.

Jóhanna, Anna Sigga og Helga

Er að leggja í hann....

Sælar allar Búskur.

Ég var að skoða færðina hjá vegagerðinni, snjókoma og snjór á vegi en logn svo ég er að leggja í hann.
Þið getið hringt í mig í síma 863 6114 ef þið viljið nánari upplýsingar um færð áður en þið leggið af stað.

Helga

10 nóvember 2006

Kristrún kl. 13:00

Kristrún í Quiltbúðinni verður hjá okkur kl. 13:00 á sunnudag.

Það er að sjálfsögðu smá fyrirvari varðandi veður og færð en eins og er - er ófært til Akureyrar,
króksarar innlyksa þar í kvöld.

Þannig að ef veðrið verður slæmt á sunnudag kemur hún að sjálfsögðu ekki.

Komnar 6 á skrá

Jæja, þetta er að skána.

Sex konur búnar að skrá sig á saumasunnudaginn auk okkar fjögurra.
Við höldum okkar áætlun í von um að fleiri láti sjá sig.

Kristrún úr Quiltbúðinni kemur með vörur.

Sísa kemst ekki með tólasýningu núna og ekki heldur Svana frá Öngulstöðum.
Við ráðgerum að fá þær síðar, Svana yrði þá jafnvel með námskeið - prentun á efni.

Við vonum að veðurguðirnir verði okkur hollir.

Helga, Anna Sigga, Solla og Jóhanna

09 nóvember 2006

Að lognast út af......?????

Jæja Búskur góðar.

Þetta lítur ekki vel út, aðeins 2 búnar að skrá sig fyrir saumasunnudaginn auk okkar, Jóhönnu, Sollu, Önnu Siggu og Helgu.

Nú er að ákveða sig og láta vita, við sláum þetta af nema við fáum ca. 10 konur í viðbót.

kv Helga, Solla, Jóhanna og Anna Sigga.

08 nóvember 2006

Saumasunnudagur 12. nóvember

Bara að minna á saumasunnudaginn, húsið verður opið frá kl. 10:00 til 16:00 og muna að skrá sig hjá einhverri okkar.
Við þurfum að vita hve margar ætla að mæta í hádegismatinn, svo við getum ákveðið hvaða stærð af potti við þurfum undir súpuna.

Helga

18 október 2006

Kvöldfundur 19. okt 2006

Það eru komnar fáeinar myndir frá fundinu undir Búsku- myndir.
Helga hefur ljósrit af óvissunni ef einhver hefur áhuga.

Það voru 9 konur sem mættu á fundinn í kvöld.
Það fer að verða spurning um hvort hægt sé að halda þessu úti með svona slakri mætingu því við húsaleigan er 6000 kr fyrir kvöldið.
Miðað við að við séum að greiða kr. 500 fyrir kvöldið á mann, þurfum við að vera 12 sem mætum til að halda ballans á dæminu.

15 október 2006

Óvissan - heimavinna

Fyrir óvissuverkefnið á næsta fundi.

6 ræmur 2 og 5/8" x 16"
efni í bak 40 x 65 cm
bómullarvatt 40 x 65 cm.
Smá afganga af nokkrum litum, 1-3 ljósa og nokkra dökka.

Ræmurnar mega vera allar eins eða mismunandi litir allt eftir smekk hvers og eins.

Við þurfum að skera smávegis í þessu verkefni, svo gott ef einhverjir taka með sér skurðarmottu.

Taka með sér eitthvað smálegt í gogginn að vanda.

12 október 2006

Næsti fundur er 19. október 2006

Næsti kvöldfundur veður þann 19. október 2006 kl: 19:00 – 23:00 á Löngumýri
Þá verðum við með óvissuverkefni, en nánari upplýsingar um efnismagn og annað verða settar hér inn fljótlega.

Helga

11 október 2006

Myndir frá fundi í september

Jóhanna hafði með sér myndavélina fundinn í september og tók nokkrar myndir sem eru komnar inn.
Tólf konur mættu á fyrsta fund vetrarins, góður fundur en fleiri hefðu mátt láta sjá sig.
Happdrættið kom í hlut nýs félaga sem var að mæta á sinn fyrsta fund.

18 september 2006

Undirbúningsfundur

Sælar allar Búskur.

Við erum búnar að koma saman til skrafs og ráðagerða, forsvarskonur klúbbsins.

Jóhanna Björnsdóttir Sauðárkróki - netfang: jsb52@simnet.is
Anna Friðriksdóttir Sauðárkróki - netfang: annafridriks@simnet.is
Helga Bergsdóttir Sauðárkróki - netfang: helgabergs@simnet.is
Sólveig Pétursdóttir Hofsósi - netfang: drangey@skagafjordur.net

Þar sem við erum þrjár hérna á Króknum og ein á H0fsósi væri ekki úr vegi að fá eina í viðbót og þyrfti hún þá helst að koma úr sveitinni.
Er einhver sem hefur áhuga?

Fyrsti fundur haustsins verður þriðjudag 26. september á Löngumýri, kl 19:00 -23:00
Fyrirkomulag verður með sama sniði og í fyrra, við hitum te og kaffi, en þið hafið með ykkur hnallþórurnar.... nei bara plat... eitthvað smálegt í gogginn.

Við byrjum á því að hafa happdrætti, allar koma með fjóra búta 8" x 8" og höfum þá í haustlitunum.

Félagsgjald verður 1000,- kr sama og í fyrra.
Kvöldfundur kr. 500.-

Kvöldfundur 19. október 19:00 -23:00
Saumasunnudagur 12. nóvember 10:00 til 16:00
Jólafundur 5. desember kl. 20:00-22:00

Stefnt er að fyrsta fundi eftir áramót 10. janúar.

18 maí 2006

Myndir frá fundi 9. maí

Ég var að setja inn myndir sem ég tók á kvöldfundinum 9. maí en þær er að finna undir hlekknum BÚSKUMYNDIR hér til hægri.

Þetta var góður fundur, mikið spjallað og nokkuð borðað.
Jóhanna sýndi okkur myndir sem hún tók á ferð sinni til Manchester í Ameríku en hún var þar líka á námskeiði.Einnig var hún með sitthvað til að sýna sem henni hafði áskotnast í ferðinni. Saumavélarnar voru hvíldar að þessu sinni.
Við ræddum um að byrja aftur í lok ágúst eða byrjun september í haust.

Helga Friðbjörns og Beta Pálma vilja hætta í nefndinni, Helga B og Sólveig P eru til í að vera áfram.
Jóhanna Björns og Anna Friðriks sögðust tilbúnar að koma inn í staðinn og ef fleiri hafa áhuga vinsamlegast látið í ykkur heyra. Það er hægt að senda póst á netföngin okkar allra.

Sumarkveðja Helga B

08 maí 2006

Kvöldfundur 9. maí

Næsti fundur verður 9. maí kl. 19:00-23:00
Þetta er klárufundur en Jóhanna Björnsdóttir ætlar að sýna og segja frá nýjungum í Ameríkunni en hún er nýkomin þaðan.

Mætum allar á síðasta fund vetrarins. Fyrirkomulag með sama hætti og áður.

06 apríl 2006

Kvöldfundi 6. apríl - FRESTAÐ

Við höfum ákveðið að slá af fundinn í kvöld vegna leiðinlegs veðurs og færðar, um óákveðinn tíma.

05 apríl 2006

Kvöldfundur 6. april

Næsti kvöldfundur verður 6. apríl.
Þetta verður hefðbundinn fundur. Á dagskránni stóð að Sísa yrði með græjusýningu en hún er búin að koma svo við verðum bara í rólegheitunum við okkar iðju.
Komið með eitthvað páskalegt sem þið eigið, sýnum og segjum frá.
Takið með ykkur ef þið eigið snið af fallegum páskaverkefnum við verðum ekki með ljósrit að þessu sinni.

18 mars 2006

Frá kvöldfundi 15. mars

Góð stemning var á kvöldfundinum en sautján konur komu sér fyrir á Löngumýri með saumavélar og annað hafurtask sem fylgir bútasaumnum. Myndir frá Jóhönnu Björnsdóttur eru komnar inn.

13 mars 2006

Kvöldfundur 15. mars

Mars - miðvikudagskvöldið 15. mars kl: 19 – 23 – vinnufundur á Löngumýri

Stjörnuþema - Þó svo að daginn sé blessunarlega farið að lengja þá ætlum við að leggja fram fáeinar fallegar stjörnur sem gaman er að sauma. Takið með ykkur stjörnustykkin ykkar og hugmyndir með stjörnumynstrum. Félagar sýna og segja frá.



16 febrúar 2006

Saumasunnudagur á Löngumýri

Febrúar: saumadagur 19. febrúar 2006. Kl: 10- 16 á Löngumýri

Kristrún í Quiltbúðinni kemur í heimsókn full af ferskum hugmyndum. Hún tekur með sér efni, snið og ýmislegt forvitnilegt. Gott að grípa budduna með. Nú er upplagt tækifæri til að koma sér í gang með eitthvað nýtt og spennandi. Svo er bara að sauma það sem hugurinn girnist. Félagar sýna og segja frá. Endilega skráið ykkur í matinn hjá einhverri okkar. Gjald fyrir daginn 1500 kr.

11 janúar 2006

Frá kvöldfundinum 10. jan

Það var góð stemning á kvöldfundinum á þriðjudaginn, 18 konur mættu með allt sitt hafurtask, saumavélar, búta, hnífa og mottur.

Við höfðum sýningu um áttaleitið, þá voru flestar komnar, búnar að fá sér kaffi í bolla og og komar á fullt í saumaskapnum. Gott er að líta upp augnablik, fá sér meira kaffi og meððí, ef eitthvað slíkt er í boði, sem ekki vantaði í þetta sinni frekar á öðrum fundum hingað til.

Mikið var dáðst að dugnaði og hugmyndaauðgi saumasystra sem sýndu verk sín með stolti.
Myndir frá fundinum eru hér til hliðar. Hægt er að bæta inn í myndum ef einhver hefur myndir sem hún vill koma á vefinn.

Helga B

09 janúar 2006

Saumafundur á Löngumýri

Við minnum á saumafundinn á Löngumýri annað kvöld kl. 19:00

Við verðum með snið að tveimur verkefnum - Ruslapoka og Tólatösku.

Efnisþörf í Ruslapokann ( ef einhver vill hafa með sér)

25 cm ytri poki

25 cm innri poki

25 cm þunnt vatt (ég notaði gula bílatusku )

Bútur af frönskum rennilás ca. 15 cm

Bútur af mottugúmmíi (fæst í rúmfatalagernum)

15 x 15 cm pappi

20“ (50 cm) kjólateinn, (ég notaði gataðan málm sem er notaður til að festa upp rafmagnsrör, fékk á verkstæði)


Efnisþörf í Tólatöskuna ( ef einhver vill hafa með sér)

Í tólatöskuna (undir bútasaumsáhöldin) er ágætt að hafa með sér bútakassann, fattara (fattquarter bútar) og hálfa fattara og þaðan af minna.

Svo þarf 75cm af tveimur mismunandi efnum.

Annars verður þetta með hefðbundum hætti, við hellum uppá, þið komið með eitthvað í gogginn ef þið viljið.

08 janúar 2006

Fundur hjá stjórninni

Stjórn Búsknanna kemur saman í kvöl kl 20:00 hjá Helgu Friðbjörns í Varmahlíð til skrafs og ráðagerða hvað varðar dagskrána fram á vorið.