05 desember 2006

Flottur jólafundur

Jólafundurinn tókst með afbrigðum vel.
Tólf konur komu sér vel fyrir í sófunum, nutu þess að maula piparkökur og drekka jólate í rólegheitunum á Löngumýri.

Við kynntum vordagskrána og bjálkakofaþema sem er samvinnuverkefni næstu annar, hver kona saumar eina blokk í grænum og dröppuðum tónum, sem settar verða saman í teppi. Allar fengu rauða bútinn í miðjunni til að vinna útfrá, sjá mynd.
Þær sem ekki gátu mætt og vilja vera með í þessu verkefni hafi samband við Jóhönnu Björns til að fá rauða bútinn sinn.

Engin ummæli: