21 september 2009

Dagskrá Búsknanna 2009 - 2010

Við erum komnar með beinagrind að dagskrá næsta starfsárs, set hana hér inn en dagsetning í febrúar gæti breyst. Við sendum hana svo út í tölvupósti til allra netvæddra og í sniglapósti á hinar þegar við höfum fengið dagsetningu á saumahelgina okkar í mars.

Vakin er athygli á að fyrsti fundurinn byrjar kl. 19:00 en ekki 18:30 eins og verið hefur.

Mánudagur 19. október - kl: 19:00 - 23:00
kvöldfundur á Löngumýri.

Sunnudagur 22. nóvember - kl: 10:00 - 16:00
saumasunnudagur á Löngumýri

Þriðjudagur 19. janúar 2010 - kl: 18:30 - 22:30
kvöldfundur á Löngumýri.

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 - kl: 18:30 - 22:30
Kvöldfundur á Löngumýri

Aðra eða þriðju helgina í mars - saumahelgi á Löngumýri, með Bútós og Kristrúnu. Alveg óráðið með þessa helgi.


15 september 2009

Miklabæjarkirkja - alltaf í leiðinni

Fyrsti fundur lofaði góðu, sautján konur mættu í Miklabæjarkirkju til að fræðast um stórverkefni Akrahreppskvenna, altaristöfluna í kirkjunni. Svanhildur Pálsdóttir sagði okkur frá tilurð altaristöflunnar og lýsti framgangi hönnunar og síðan vinnunni við verkið, sem vígt var í sumar.

Ég skora bara á ykkur allar áhugakonur um bútasaum, komið við í kirkjunni og lítið á teppið.
Glæsilegt í alla staði og vekur aðdáun á eljusemi og dugnaði þessara eldhuga sem verkið unnu.
A.m.k. eitt hundrað sinnum komu þær saman til skrafs og ráðagerða, stundum bara tvær, stundum fleiri og stundum allar.

Að skoðunarferðinni lokinni settumst við inn á Hótel Varmahlið spjölluðum um vetrardagskrána. Hún er í vinnslu en verður sett hér inn um leið og komin er niðurstaða á fastar dagsetningar, á eftir að ræða við Gunna á Löngumýri og slíkt.

Næstu 5 helgar er Kristrún og staffið í Quiltbúðinni með saumahelgar á Löngumýri, ef helgar skildi kalla, því sumar mæta á fimmtudegi, tekur því varla fyrir þær stöllur að fara heim á milli.
Amk 10 Búskur hafa skráð sig á saumahelgi hjá Kristrúnu.

06 september 2009

Fyrsti fundur starfsársins - frekari upplýsingar

Fyrsti fundur haustins verður mánudaginn 14. september.
Við byrjum á að skoða altaristeppið í kirkjunni á Miklabæ, Svana verður leiðbeinandi í þeirri ferð. Fáum okkur svo kaffi og með´ví á Hótel Varmahlíð og skipuleggjum starf vetrarins.
Mæting við Hótel Varmahlíð kl. 19:30

Nú mætum við allar og bjóðum með okkur nýjum félögum.

Anna Sigga, Ebba, Jóhanna og Helga

Fyrsti fundur starfsársins

Fyrsti fundurinn í haust er fyrirhugaður mánudaginn 14. september og ráðgert er að fara í Miklabæjarkirkju og skoða altaristöflu bútasaumskvenna í Akrahreppi og Svana kæmi þá með okkur til að kynna verkið. Nánari upplýsingar verða settar inn þegar málið er í höfn.