24 desember 2008

Jólin garðinn ganga í...

Gleðilega jólahátíð allar Búskur og bútasaumsunnendur vítt og breytt um landið.

16 desember 2008

Kvöldfundur 20. janúar.

ATHUGIÐ - breyting á fundardegi - janúarfundurinn verður 20. janúar en ekki 13. eins og áður var ákveðið, vegna breytinga hjá Gunnari.

09 desember 2008

Jólafundur 2008

Notalegum jólafundi lokið, fámennt en góðmennt, Jóhanna, Ebba, Anna Sigga, Sólveig Sig. og Sigga Valgarðs sátu yfir góðgæti og spjalli. Sigga hlaut happdrættisvinninginn góða, pakkning með sniði og efni frá GE design, sem hún kallar Húsfriður.
Helga komst því miður ekki, fann upp á því að fara að handleggsbrjóta sig í gærmorgun, aarrrrrgggggg....... enginn saumaskapur næstu vikurnar á þeim bænum.

Set hér inn leiðbeiningar að þessu veggteppi, tilvalið t.d. að útbúa jóladagatal eða bæta á þetta einhverjum jólaskreytingum.
Bara smella á fyrirsögnina til að komast inn á leiðbeiningasíðuna (enska)

06 desember 2008

Jólafundur á Löngumýri

Mánudagur 8. desember - kl: 20:00 - 22:00
Breyting: Gunnar hafði tvíbókað daginn, svo við þurftum að færa fundinn fram um einn dag.

Við komum saman á Löngumýri, höfum með okkur litla innpakkaða gjöf, skemmtilegast eitthvað heimatilbúið eða tengt bútasaum en halda verði í lágmarki. Eigum huggulega stund við kertaljós og góðgæti. Sýna og segja frá.

19 nóvember 2008

Saumasunnudagur á Löngumýri.

Sunnudagur 23. nóvember - kl: 10:00 - 16:00 saumasunnudagur á Löngumýri.

Við opnum húsið k. 10:00 en frjálst er að mæta þegar hverjum og einum hentar.
Við verðum með léttan mat í hádeginu, súpu, brauð, salat.
Alltaf heitt á könnunni.
Sýna og segja frá.

11 nóvember 2008

Flottur fundur

Fjölmennur og góður fundur í kvöld á Löngumýri.
Tvær konur komu á byrjendanámskeiðið, þær eru nokkuð klárlega smitaðar af bútaveikinni.
Myndir frá kvöldinu komnar á myndasíðuna.
Kveðja Helga.

06 nóvember 2008

Búskurnar auglýsa !

Næsti fundur á Löngumýri er þriðjudaginn 11. nóveber.

Við reynum aftur!

Nú er tækifæri til að kynnast bútasaumnum.
Kvöldfundur á Löngumýri þriðjudaginn 11. nóv. kl. 18:30
Byrjendanámskeið í bútasaum gegn vægu gjaldi ca. kr. 3000

Ebba 895 5024, Anna Sigga 861 3458, Helga 863 6114

Hafið með ykkur saumavélina, millistykki, tvinna, sprettar og skæri. Gott er líka að hafa með lítinn lampa. Frekari upplýsingar í ofanskáðum símum.


Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar


Búskurnar

04 nóvember 2008

Jóhanna "Down under"

Sælar allar Búskur.

Ég fékk póst frá Jóhönnu í Ástralíu.
Sú hefur það nú aldeilis fínt, en var búin að finna tvær bútasaumsverslanir sem henni leist nú ekki meira en svo á, en fór svo með íslenskri vinkonu Unnar frænku sinnar í bútasaumsklúbb sem saumar öll mánudagskvöld í tvo-þrjá tíma. Klúbburinn er haldinn í búð sem var víst algjört æði. Hún "missti hökuna niður á bringu og flippaði algjörlega", segir hún.
Frábær efni og frábærar bækur, keypti eitthvað til að sýna okkur. Ætlar svo að taka slatta af myndum segir hún en hún fer aftur að sauma með þeim og ætlar auðvitað að taka með sér tölvuna til að geta sýnt þeim myndir frá okkur Búskunum.

Er svo að fara í "afslöppun" með frænku sinni, verða tvær saman á hóteli í tvo daga, ætli búðargluggarnir hafi nú ekki eitthvað aðdráttarafl, sérstaklega ef einhverjir strangar eru nú í gluggunum. Ekkert smá gott að vera svona í skermuðu umhverfi á þessum ömurlegu tímum hérna á skerinu.

23 október 2008

Slæmt veður

Fundinum sem vera átti í kvöld er frestað.
Byrjendanámskeiðið verður á næsta fundi sem er þriðjudagurinn 11. nóvember á sama tíma.

22 október 2008

Vitlaus spá fyrir fimmtudag

Það er snarvitlaus spá fyrir morgundaginn hér á Skagafjarðarsvæðinu.

Við sjáum til fram að hádegi á morgun hvort við höldum fundinum annað kvöld til streitu, set þá inn upplýsingar um hvort við frestum eða ekki.

20 október 2008

Kvöldfundur 23. október

Búskurnar auglýsa !

Nú er tækifæri til að kynnast bútasaumnum.

Kvöldfundur á Löngumýri fimmtudaginn 23. okt. kl. 18:30

Byrjendanámskeið í bútasaum gegn vægu gjaldi ca. kr. 3000
Áhugasamir skrái sig hjá hjá Herdísi í Kompunni eða í símum:
Ebba 895 5024, Anna Sigga 861 3458, Helga 863 6114

Hafið með ykkur saumavélina, millistykki, tvinna, sprettar og skæri, efni í lítið verkefni er innifalið í verðinu. Gott er líka að hafa með lítinn lampa. Frekari upplýsingar í ofanskáðum símum.

Búskufélagar sauma að vild eins og venjulega.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar

Búskurnar

02 október 2008

Myndir

Myndir frá fundinum á þriðjudaginn komnar inn.

29 september 2008

Þriðjudagur 30. september - kl: 18:30 - 22:30

Munið eftir fundinum annað kvöld á Löngumýri.

Hefðbundinn kvöldfundur, fattarahapp- drætti, en stærð á hverjum bút er c.a. 45cm x 56cm
Komið með 2 fattara til að leggja í púkkið, dregið verður úr potti. Takið eftir breyttum fundartíma, við byrjum hálf sjö í stað sjö og hættum hálftíma fyrr.
Stingið smáköku eða vínberjum í vasann til að maula með kaffinu.

25 september 2008

Starfið í vetur

Fyrirkomulag vinnufundanna verður með svipuðum hætti og í fyrra og þó svo að við verðum með einhverja kennslu eða þema, þá notið þið tímann að sjálfsögðu eins og þið óskið. Hugsanlega verður bætt inn einhverju þema eða verkefnum eftir því sem á líður. kaffi og te verður á staðnum, en þið hafið með ykkur eitthvað smálegt í gogginn fyrir kvöldfundina.
Nauðsynlegt er að skrá sig á saumasunnudagana vegna matarkaupa.

Takið með ykkur nýja félaga eða bjóðið vinkonunni að koma og kynnast bútasaumnum.
Bútakonur úr öðrum félögum eru alltaf velkomnar á fundi hjá okkur.

Dagskráin er komin á vefinn með smá fyrirvara þó, því við eigum eftir að fá staðfestingu frá staðarhaldara á Löngumýri um síðasta kvöldfundinn.

Svo vitum við um að vestankonur hafa áhuga á að koma í heimsókn til okkar, hér á ég við Bútós konur á Blönduósi og Skagaströnd. Þær eru að sjálfsögðu alltaf velkomnar.

Dagskrá Búsknanna 2008 - 2009

Þriðjudagur 16. september - kl: 19:00 - 23:00 kvöldfundur á Löngumýri.
Fyrsti fundur haustsins.
Við setjum upp dagskrá vetrarins, tillögur og nýjar hugmyndir að dagskrá næsta vetrar vel þegnar. Kaffi og meðlæti verður í boði félagsins á þessum fyrsta fundi.
Sýna og segja frá.

Þriðjudagur 30. september - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Hefðbundinn kvöldfundur, fattarahappdrættir. Komið með 2 fattara (45x56) til að leggja í púkkið. Dregið verður úr potti. Sýna og segja frá.

Fimmtudagur 23. október - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga. Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði. Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar. Sýna og segja frá.

Þriðjudagur 11. nóvember - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Hefðbundinn kvöldfundur. Sýna og setja frá.

Sunnudagur 23. nóvember - kl: 10:00 - 16:00 saumasunnudagur á Löngumýri.
Við opnum húsið k. 10:00 en frjálst er að mæta þegar hverjum og einum hentar. Byrjað verður á að draga sér leynivin fyrir daginn, nánari útskýringar síðar. Við verðum með léttan mat í hádeginu, súpu, brauð, græmneti, ávexti, etv. heitan rétt. Alltaf heitt á könnunni. Sýna og segja frá.

Mánudagur 8. desember - kl: 20:00 - 22:00 jólafundur á Löngumýri.
Breyting: Gunnar hafði tvíbókað daginn, svo við þurftum að færa fundinn fram um einn dag.
Við komum saman á Löngumýri, höfum með okkur litla innpakkaða gjöf, skemmtilegast eitthvað heimatilbúið eða tengt bútasaum en halda verði í lágmarki. Eigum huggulega stund við kertaljós og góðgæti. Nánar síðar. Sýna og segja frá.

Þriðjudagur 20. janúar - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Breyting: Gunnar fékk bókun á alla vikuna, svo við þurftum að færa fundinn aftur um eina viku.
Hefðbundinn afslappaður kvöldfundur eftir jólin, sýna og segja frá.

Þriðjudagur 10. febrúar - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga ef þátttaka. Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði. Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar. Sýna og segja frá.

Sunnudagur 15. mars- kl: 9:00 - 17:00 saumasunnudagur á Löngumýri.
Við opnum húsið k. 9:00 en frjálst er að mæta þegar hverjum og einum hentar. Við borðum á Hótel Varmahlíð hjá Svönu í hádeginu kr. 2,500 fyrir manninn. Enginn annar kostnaður við saumadaginn, nema ef konur vilja hafa með sér millibita eða einskonar morgunverð og með síðdegiskaffinu. Alltaf heitt á könnunni. Sýna og segja frá.

Þriðjudagur 31. mars- kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Síðasti hefðbundni fundurinn á saumaárinu. Sýna og segja frá.

Laugadagur 9. maí - Lokafundur
Dagsferð, nokkrar hugnyndir hafa komið fram, við vinnu úr þeim, nánar síðar.

Félags- og fundagjald.

Gjald fyrir venjulegan kvöldfund kr. 1.000

Hjálpartækin

Bútasaumshjálpartæki sem Búskurnar eiga.
  • Stór skurðarmotta
  • Stika
  • Strauborð
  • Gufustraujárn

Umsjónarmenn Búskna

Anna Sigríður Friðriksdóttir hs. 453 5717 gsm 861 3458
netf: annafridriks hjá simnet.is

Sigurlaug Ebba Kristjánsdóttir hs. 453 5024 gsm 895 5024
netf: ebba hjá frumherji.is

Félagar

Félagar 11. nóvember 2008

Anna Gísladóttir Sauðárkróki
Anna Pála Þorsteinsdóttir Sauðárkróki
Anna Sigríður Friðriksdóttir Sauðárkróki
Ebba Kristjánsdóttir Kvistholti
Friðbjörg Vilhjálmsdóttir Sauðárkróki
Helga Friðbjörnsdóttir Varmahlíð
Helga J Haraldsdóttir Sjávarborg
Helga S. Bergsdóttir Sauðárkróki
Ingibjörg Guðbjartsdóttir Sauðárkróki
Ingibjörg Sigfúsdóttir Álftagerði
Jóhanna Björnsdóttir Sauðárkróki
Jónína Friðriksdóttir Laugamýri
Sigríður Guðmundsdóttir Sauðárkróki
Sigríður Valgarðsdóttir Sauðárkróki
Sigrún Indriðadóttir Stórhóli
Sólveig Sigurðardóttir Sauðárkróki
Þórdís Friðbjörnsdóttir Varmahlíð

18 september 2008

Myndir

Nokkrar myndir frá fundinum komnar inn á myndasíðuna og munið að skrifa í gestabókina.

17 september 2008

Septemberfundur

Þrettán konur mættu til skrafs og ráðgerða á Löngumýri í gærkveldi. Það var skorið, saumað, straujað og rakið pínu upp, til að komast í gírinn. Við tókum okkur gott kaffihlé en Jóhanna og Anna Sigga komu með þessar fínu kökur með kaffinu. Vetrardagskráin var sett á blað og ýmsar hugmyndir ræddar, m.a. að bjóða upp á einskonar byrjenda námskeið fyrir nýja félaga einu sinni fyrir áramóti og aftur eftir áramót. Félagsgjaldið verður það sama og í fyrra kr. 1.000,- og gjald fyrir fundina líka, eða kr. 1.000,-

Eitthvað af aurum er til í sjóðnum okkar og stefnum við á að hafa lokafund 9. maí og fara þá í einhverskonar "óvissu" ferð. Nokkrar hugmyndir komu fram sem verða ræddar betur þegar nær dregur.

Dagskráin hefur ekki verið gefin út ennþá, þar sem við eigum eftir að ræða við staðarhaldara á Löngumýri um hvort húsið sé laust þá daga sem við völdum, en kvöldfundir verða að öllu óbreyttu allaf á þriðjudögum, saumasunnudagur fyrir og eftir áramót og jólafundur í byrjun desember.

09 september 2008

Fyrsti fundurinn í haust

Fyrsti fundur vetrarins verður þriðjudaginn 16. september kl. 19:00 – 23:00 á Löngumýri
Við ákveðum vetrardagskrána á fundinum, allar ábendingar og nýjar hugmyndir eru vel þegnar.

Kaffi og smá nart með því verður í boði félagsins að þessu sinni.
Straujárnið og strauborðið ásamt mottu og stiku veður komið aftur á sinn stað.

Nýir félagar ávallt velkomnir.

Jóhanna, Anna Sigga, Ebba og Helga B

05 júní 2008

GESTABÓK

Ég er búin að setja upp gestabók hér til hægri. Það væri nú gaman ef þið sem eruð að kíkja hérna inn nenntuð að skrifa smá.
Kv Helga Bergs

22 maí 2008

Saumahelgi 2007

Strúnubragurinn sem Gunnar á Löngumýri samdi og fór með á Quiltbúðar-saumahelgum síðasta haust.

Lag: Stebbi og Lína


Það var fyrir nokkrum árum þegar Strúna fór á stjá
að hún stefnu tók að hóa saman konum.
Sem höfðu jafnvel áratugi alið sömu þrá
með afgöngunum listhneigð sína tjá.

En hvað var þá til ráða til að koma þessu á skrið
var Kristrúnar því næsti höfuðverkur.
Svo fljótlega hún kynna fór sér kvennaathvarfið
þar sem kirkjan veitir saumaóðum grið.

Því varð Löngumýri staðurinn sem Strúnu líkar vel
svo hún stefnir þangað miklum kvennaskara.
Sem að mæta þó að stundum nauði stormur eða él
til að standa í botni túrbósaumavél.

Er þær byrja hér á fimmtudögum fílingur er sá
að formúlan sé um það bil að hefjast.
Með títuprjón í munni, tána peldanum á
á taugum þar til Strúna segir má.

Í kílómetravís þær síðan kaupa rándýr ver
til að klippa nið´r í oggulitla búta
Þær reyna svo að púsla þessu saman sikk og þver
en það sáralítill möguleiki er.

Svo stæra þær og masa hversu stórkostlegt það sé
ef þær stykkjum geta komið aftur saman.
En greinilegt er samt að mesta gleði láta í té
þegar gefur Strúna flokknum matarhlé.

En með bútasaumaveiki fylgir hvorki kvöl né sár
og þær kátar virðast una meðferðinni.
Nema á stöku hvarmi mögulega glitti í gleðitár
þegar grúppan hittist aftur næsta ár.

Tra la la
Gunnar Rögnvaldsson okt 2007



20 maí 2008

Lokafundur - sleginn af

Á dagskránni okkar er síðasti fundur settur þriðjudaginn 24. maí sem stenst engan vegin hjá okkur því 24. maí er laugardagur. Það var reyndar meiningin þegar við settum þessa dagskrá saman að fara í einhverja stutt ferð til Akureyrar þennan laugardag, kíkja til Kristrúnar í Quiltbúðinni, etv einhver smá uppákoma þar og borða svo saman á eftir. En það féll um sjálft sig því Kristrún er á ferðalagi þessa vikuna og kemur ekki heim fyrr en þennan sama laugardag.
Þá datt okkur í hug að heimsækja Bútós á Blönduósi og borða saman á Pottinum og Pönnunni þó stuttur fyrirvari væri á þeirri hugdettu hefði það átt að geta gengið upp.

En eftir nokkrar vangaveltur var ákveðið að fresta þessu fram á haustið því Jóhanna er komin með flensu, Anna Sigga í önnum og ég (Helga) er upptekin á laugardaginn.
Jóhanna mun því senda tölvupóst um það, á allar sem hafa netfang. (svona inn á milli hnerranna)

Við ætlum að koma saman og skipuleggja starfið, athuga með Löngumýri og fleira þann 26. ágúst svo fyrsti saumafundur ætti að vera fyrstu eða aðra vikuna í september. Þá munum við kynna drög að dagskrá svo allar hugmyndir eru vel þegnar, og nýir félagar eru velkomir í klúbbinn.
Fyrsti kvöldfundurinn verður svo auglýstur í Sjónhorninu.

Skurðarmottuna, stikuna og strauborðið okkar, tók ég (Helga s: 863 6114) með mér heim eftir síðasta fund á Löngumýri, gufustraujárnið er hjá Ebbu (s: 895 5024) . Ef einhver Búska vill nýta sér þessa hluti í sumar er bara að hafa samband við okkur.

Við þökkum starfið í vetur en hlökkum til að byrja aftur af fullum krafti með haustinu.

07 maí 2008

Bútóshelgin

Var að setja inn myndir frá Bútóshelginni á Blönduósi helgina 2-4 maí, en þá bauð Bútós, nokkrum vildarvinum að vera með á saumahelginni þeirra. Helgina var að sjálfsögðu frábær, mikið saumað, mikið spjallað og mikið borðað. Við vorum þrjár úr Skagafirðinum, Ebba, Anna Sigga og Helga Bergs.
Mynd: óvissuverkefni frá föstudagskvöldinu.

25 apríl 2008

Fámennur en fínn fundur

Við vorum heldur fáar sem mættum á mánudagskvöldið síðasta, en áttum engu að síður góða stund á Löngumýri, eins og alltaf. Nokkrar myndir komnar á Búskumyndasíðuna. Setti hér inn mynd af barnateppi sem ég (Helga Bergs) er að sauma handa barnabarninu mínu.

20 apríl 2008

Kvöldfundur á Löngumýri.

Halló Búskur.

Kvöldfundur á Löngumýri á morgun, mánadagskvöld kl. 19:00 til 23:00 Við höfðum ætlað okkur að hafa námskeið eða kynningu þetta kvöld en af því verður ekki. Þetta verður því hefðbundin fundur, saumað og spjallað, sýna sitt og sjá hvað hinar eru að gera.

17 apríl 2008

Vildarvinadagur á Skagaströnd

Við fórum tvær Búskur að sauma á Skagaströnd á laugardaginn síðasta. Þar var svokallaður Vildarvinasaumadagur hjá þeim "Skaggaskröttunum" en það er sá hluti Bútóskvenna sem kemur frá Skagaströnd sem kalla sig þessu nafni. Þetta var eins og að líkum lætur, frábær dagur, við gerðum ekkert annað en sauma og borða. Nákvæmlega það sem til var ætlast. Mynd: Ásthildur Gunnlaugsdóttir.
Set inn myndir frá saumadeginum, Helga Bergs.

29 mars 2008

Myndir frá Crazy Quilt námskeiði

Var að setja inn myndir frá námskeiðinu í gær. Þetta var skemmtilegt kvöld, auðvitað var saumað af kappi, bæði í saumavélinni og skrautsaumar eftir að búturinn var kominn saman.

27 mars 2008

Crazy Quilt námskeið á Löngumýri

Búskur allar með tölu... nú er bara að setja sig í stellingar og drífa saumadótið út í bílinn í hádeginu svo allt sé tilbúi fyrir fundinn í kvöld sem hefst að þessu sinni kl. 18:00

18 mars 2008

Crazy Quilt námskeið á Löngumýri

Jæja Búskur!
Eigum við ekki bara að slappa yfir páskana, leggjast í páskaeggin og kíla vömbina!!

Já, já, en ekki lengi.... strax eftir páskana eða þann 27. mars hittumst við á Löngumýri á Crazy Quilt námskeiði hjá Svönu, (etv. Helgu Friðbjörns líka) byrjum klukkan 18 og verðum eitthvað fram eftir kvöldinu.

Konur þurfa að hafa með sér efni af ýmum gerðum, fjölbreyttir litir, áferð og útlit gera verkið mun skemmtilegra og útkomuna betri. Gömul hálsbindi, silkiblússur, satíntoppar, slæður, velúrgluggatjöld og allt mögulegt kemur til greina.

Ath. Hefðbundin bútasaumsefni ekki notuð.

Takið einnig með ykkur útsaumsgarnið ykkar, perlur, blúndur og annað sniðugt sem leynist í skúffunum. Ca 25x25 cm bút af lérefti, gömlu sængurveri eða laki.
Svo að sjálfsögðu saumavélina, skæri og crazy skapið.
(mottur og stikur óþarfar)

Námskeiðsgjald: 3000 kr fyrir konuna.
Svo kemur húsaleiga og kaffikostnaður að auki eða kr. 1.000 á mann.

Takið endilega með ykkur gesti og ekki er verra að tilkynna mætingu á námskeiðið til Jóhönnu á jsb52@simnet.is

Að sjálfsögðu verður skurðarborðið, stóra mottan, stikan og straujárnið á sínum stað ef einhver vill koma og sauma hefðbundin bút....


Ég fann nokkrar flottar myndir á netinu, það er sko ýmislegt hægt að gera úr gömlum gardínum, fermingarkjólum, bindinu hans afa eða blúndu undirkjólnum hennar ömmu!



Sjáumst hressar og í bútastuðinu.....
Jóhanna, Ebba, Anna Sigga og Helga.

04 mars 2008

Myndir

Nokkrar myndir frá henni Jóhönnu frá klárudeginum á Löngumýri í febrúar komnar inn á síðuna.
kv Helga

25 febrúar 2008

Myndir frá saumalaugardeginum

Kristrún í Quiltbúðinni hefur sett inn myndir frá saumadeginum á Löngumýri um síðustu helgi. Smellið bara á fyrirsögnina og þá eruð þið komin inn á myndasýninguna.
kv Helga

Breyting á fundartíma í apríl

Aprílfundurinn hefur verið færður aftur um eina viku og verður því mánudaginn 21. apríl í stað 14. apríl.

20 febrúar 2008

Saumalaugardagur 23. febrúar

Sælar kæru Búskur
Þá fer nú að líða að saumalaugardeginum okkar með Bútós konum og Kristrúnu í Quiltbúðinni + fylgdarlið.


Næsta laugardag, 23. febrúar, frá kl. 09,oo til ca. 16,oo.


Boðið verður upp á súpu og salat í hádeginu og svo kannski eitthvað sætt með kaffinu - sanngjarnt verð:)
Þess vegna verðum við að biðja ykkur að skrá ykkur, svo við vitum hversu mikla súpu við eigum að sjóða:) Væri gott að vita um þátttöku fyrir fimmtudagskvöld.


Mætingin í vetur hefur verið með lélegra móti, og væri nú gaman að sjá fleiri andlit í þetta sinn. Við höfum hlerað að konur hafi spurst fyrir um bútasaumsnámskeið - svo ef þið þekkið einhverjar sem hafa áhuga - endilega bjóðið þeim með - engin skylda að ganga í "flokkinn" á fyrsta fundi, bara prófa og hafa gaman af vonandi.

ENN OG AFTUR - UPP MEÐ SOKKANA - OG HASKA SÉR SVO Á LÖNGUMÝRI:):):)

Bestu kveðjur
Jóhanna, Helga Bergs, Anna Sigga og Ebba

31 janúar 2008

Dagsbirtuljósalampar

Ég komst að því fyrir tilviljun að dagsbirtuljósalamparnir hjá PFAFF eru á tilboði núna, kr. 7.900 í stað tæpra 13.000. Smelltu á fyrirsögnina til að fá betri upplýsingar.

19 janúar 2008

Janúarfundurinn

Nokkrar myndir frá síðasta fundi komnar inn á myndasíðuna.
Fundurinn var fámennur en góður, 6 konur saumuðu, spjölluðu, skiptust á hugmyndum og skoðunum, sýndu afrakstur jólamánaðarins. Anna Sigga fékk happdrættisræmurnar.

09 janúar 2008

Kvöldfundur 10. janúar

Jæja Búskur! Gleðlilegt nýtt ár, þökkum stórskemmtilega sauma-samveru , hlátur og spjall, liðins árs.

Þá er komið að fyrsta fundi á nýju ári. Á morgun fimmtudaginn 10. janúar er fundur á Löngumýri. Hann hefst kl. 19:00 að venju og stendur til kl.23:00. Við ætlum að hafa ræmuhappdrætti og biðjum ykkur því að koma með 3 ræmur sem eru 3" breiðar og breidd efnis eða ca. 42" Litaval er í ykkar höndum.

Kaffi og meðví - að hefðbundnum hætti.

Sjáumst allar hressar og kátar, uppfullar af góðum hugmyndum. Skyldi einhver hafa notað jólafríið til að bútast? Það verður spennandi að sjá.

Bestu kveðjur, Helga, Jóhanna, Anna Sigga og Ebba.

Sagan hennar Berglindar Snæland

Jæja, ég (Berglind Snæland) kom við í Virku á fimmtudaginn til að bara kaupa smá dúkavatt til að stinga dúkana sem ég saumaði á Löngumýri. Áður en ég vissi af sá ég kvenmannshendur reiða fram kreditkort til að greiða fyrir 8,5 metra af efni og nýja skurðarmottu. Þegar ég kom aftur út í bíl rankaði ég við mér og áttaði mig á því að þessar kvenmannshendur voru mínar og að ég hafði keypt efni og skurðarmottu en gleymt að kaupa vattið! Hafið þið nokkuð lent í svona?!!

Tekið af vef Berglindar, http://catnap.typepad.com/catnap/

Jólasveinarnir hennar Berglindar, sem ég fann á sömu síðu.