Jæja Búskur!Eigum við ekki bara að slappa yfir páskana, leggjast í páskaeggin og kíla vömbina!!
Já, já, en ekki lengi.... strax eftir páskana eða þann 27. mars hittumst við á Löngumýri á Crazy Quilt námskeiði hjá Svönu, (etv. Helgu Friðbjörns líka) byrjum klukkan 18 og verðum eitthvað fram eftir kvöldinu.
Konur þurfa að hafa með sér efni af ýmum gerðum, fjölbreyttir litir, áferð og útlit gera verkið mun skemmtilegra og útkomuna betri. Gömul hálsbindi, silkiblússur, satíntoppar, slæður, velúrgluggatjöld og allt mögulegt kemur til greina.Ath. Hefðbundin bútasaumsefni ekki notuð.
Takið einnig með ykkur útsaumsgarnið ykkar, perlur, blúndur og annað sniðugt sem leynist í skúffunum. Ca 25x25 cm bút af lérefti, gömlu sængurveri eða laki.
Svo að sjálfsögðu saumavélina, skæri og crazy skapið.
(mottur og stikur óþarfar)

Námskeiðsgjald: 3000 kr fyrir konuna.
Svo kemur húsaleiga og kaffikostnaður að auki eða kr. 1.000 á mann.
Takið endilega með ykkur gesti og ekki er verra að tilkynna mætingu á námskeiðið til Jóhönnu á jsb52@simnet.is
Að sjálfsögðu verður skurðarborðið, stóra mottan, stikan og straujárnið á sínum stað ef einhver vill koma og sauma hefðbundin bút....

Ég fann nokkrar flottar myndir á netinu, það er sko ýmislegt hægt að gera úr gömlum gardínum, fermingarkjólum, bindinu hans afa eða blúndu undirkjólnum hennar ömmu!
Sjáumst hressar og í bútastuðinu.....
Jóhanna, Ebba, Anna Sigga og Helga.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli