Það eru komnar nýjar myndir á myndasíðuna. Stefanía var sem betur fer með myndavélina sína en ég hafði gleymt minni.
Fjórtán konur voru mættar til sauma, en því miður fengum við ekki ferðatöskusýninguna, einhver mistök hjá Íslenska bútasaumsfélaginu sem sér um töskuna, en vid fáum hana í staðinn á fundinn í febrúar sem verður SAUMALAUGARDAGUR.
Þá er von á félögum úr Bútós á Blönduósi og frá Akureyri, sem ætla að koma og sauma með okkur.
Þá þurfa allir sem ætla að vera í mat að skrá sig.
Helga
14 janúar 2007
09 janúar 2007
Fimmtudaginn 11. janúar
Sælar allar Búskur og gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir það gamla.
Nú er Jóhanna búin að senda póst á allar á listanum, já og ekki bara einu sinni heldur tvisvar... gott hjá henni.
Við mætum auðvitað allar eldhressar og í saumastuði... eða hvað?
Ég var að finna saumadótið, leitaði lengi innan um allt jóladótið sem ég er að ganga frá. Eins gott að pjötlurnar fari nú ekki í sama kassann og skrautið á jólatréinu því þá finn ég það seint, eða þannig.
Við hlökkum til að sjá ykkur allar og munið að koma með litlu rauðu bútana, ja eða þá blokkina ef þið eruð búnar að vera rosa duglegar.
Jóhanna á fleiri búta ef einhver hefur ekki fengið sinn.
Sjáumst, Helga og hinar skvísurnar.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)