Sælar allar Búskur og gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir það gamla.
Nú er Jóhanna búin að senda póst á allar á listanum, já og ekki bara einu sinni heldur tvisvar... gott hjá henni.
Við mætum auðvitað allar eldhressar og í saumastuði... eða hvað?
Ég var að finna saumadótið, leitaði lengi innan um allt jóladótið sem ég er að ganga frá. Eins gott að pjötlurnar fari nú ekki í sama kassann og skrautið á jólatréinu því þá finn ég það seint, eða þannig.
Við hlökkum til að sjá ykkur allar og munið að koma með litlu rauðu bútana, ja eða þá blokkina ef þið eruð búnar að vera rosa duglegar.
Jóhanna á fleiri búta ef einhver hefur ekki fengið sinn.
Sjáumst, Helga og hinar skvísurnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli