Það eru komnar inn nokkrar myndir frá kvöldfundinum síðasta, við vorum bara 5 en áttum góða stund.
30 nóvember 2009
18 nóvember 2009
Frestun saumasunnudags
Sælar kæru Búskur!
Af óviðráðanlegur orsökum verður við að hætta við saumasunnudaginn sem vera átti næstkomandi sunnudag 22. nóvember.
Þess í stað verður venjulegur saumafundur mánudaginn 23. nóvember - húsið verður opnað kl. 18:30
Vonumst til að sjá sem flestar.
Kveðja, Jóhanna, Helga B, Anna Sigga og Ebba.

21 september 2009
Dagskrá Búsknanna 2009 - 2010
Við erum komnar með beinagrind að dagskrá næsta starfsárs, set hana hér inn en dagsetning í febrúar gæti breyst. Við sendum hana svo út í tölvupósti til allra netvæddra og í sniglapósti á hinar þegar við höfum fengið dagsetningu á saumahelgina okkar í mars.
Vakin er athygli á að fyrsti fundurinn byrjar kl. 19:00 en ekki 18:30 eins og verið hefur.
Mánudagur 19. október - kl: 19:00 - 23:00
kvöldfundur á Löngumýri.
Sunnudagur 22. nóvember - kl: 10:00 - 16:00
saumasunnudagur á Löngumýri
Þriðjudagur 19. janúar 2010 - kl: 18:30 - 22:30
kvöldfundur á Löngumýri.
Miðvikudagur 17. febrúar 2010 - kl: 18:30 - 22:30
Áætlaður kvöldfundur á Löngumýri en dagsetningin ekki alveg fastsett, nánar síðar.
Aðra eða þriðju helgina í mars - saumahelgi á Löngumýri, með Bútós og Kristrúnu. Nánari tímasetning kemur fjótlega.

15 september 2009
Miklabæjarkirkja - alltaf í leiðinni
Fyrsti fundur lofaði góðu, sautján konur mættu í Miklabæjarkirkju til að fræðast um stórverkefni Akrahreppskvenna, altaristöfluna í kirkjunni. Svanhildur Pálsdóttir sagði okkur frá tilurð altaristöflunnar og lýsti framgangi hönnunar og síðan vinnunni við verkið, sem vígt var í sumar.Ég skora bara á ykkur allar áhugakonur um bútasaum, komið við í kirkjunni og lítið á teppið.
Glæsilegt í alla staði og vekur aðdáun á eljusemi og dugnaði þessara eldhuga sem verkið unnu.
A.m.k. eitt hundrað sinnum komu þær saman til skrafs og ráðagerða, stundum bara tvær, stundum fleiri og stundum allar.
Að skoðunarferðinni lokinni settumst við inn á Hótel Varmahlið spjölluðum um vetrardagskrána. Hún er í vinnslu en verður sett hér inn um leið og komin er niðurstaða á fastar dagsetningar, á eftir að ræða við Gunna á Löngumýri og slíkt.
Næstu 5 helgar er Kristrún og staffið í Quiltbúðinni með saumahelgar á Löngumýri, ef helgar skildi kalla, því sumar mæta á fimmtudegi, tekur því varla fyrir þær stöllur að fara heim á milli.
Amk 10 Búskur hafa skráð sig á saumahelgi hjá Kristrúnu.
06 september 2009
Fyrsti fundur starfsársins - frekari upplýsingar
Fyrsti fundur haustins verður mánudaginn 14. september.
Við byrjum á að skoða altaristeppið í kirkjunni á Miklabæ, Svana verður leiðbeinandi í þeirri ferð. Fáum okkur svo kaffi og með´ví á Hótel Varmahlíð og skipuleggjum starf vetrarins.
Mæting við Hótel Varmahlíð kl. 19:30
Nú mætum við allar og bjóðum með okkur nýjum félögum.
Anna Sigga, Ebba, Jóhanna og Helga

Fyrsti fundur starfsársins
Fyrsti fundurinn í haust er fyrirhugaður mánudaginn 14. september og ráðgert er að fara í Miklabæjarkirkju og skoða altaristöflu bútasaumskvenna í Akrahreppi og Svana kæmi þá með okkur til að kynna verkið. Nánari upplýsingar verða settar inn þegar málið er í höfn.
27 júní 2009
Myndir komnar inn
Loksins tókst mér að hlaða inn myndunum frá Vildarvinahelginni hjá Bútós á Blönduósi. Eitthvað ólag á myndasíðunni, en njótið vel.
11 maí 2009
Bútósgleðin
Já, já, það var engin lognmolla á saumahelginni á Blönduósi í þetta skipti, frekar en fyrri daginn.
Allar svo glaðir og kátir með bútana sína og saumavélarnar allt um kring, já og aldrei þessu vant fengum við nóg að borða.
Skoppa og Skrýtla höfðu að sjálfsögðu farið í búrið hjá betri bændum í héraðinu og fóru svo sannarlega ekki tómhentar þaðan út. Við hinar dunduðum við að leggja á borð og í mesta lagi skera niður grænmeti annars var allt fyrirfram tilbúið. Gugga Páls er alltaf góð í pungunum, sérlega vel lagaðir hjá henni, Anna Margrét bauð okkur að smakka skyrbrauðið sitt og í fingurbjörg af þessu líka dásamlega krækiberjavíni.
Svona rétt inn á milli máltíða var skorið og saumað, straujað og stungið, rakið pínu upp, enn ekki samt mikið. Óvissuverkefni var tilsniðið og lagt upp í hendurnar á okkur, alltaf gaman að svoleiðis.
Af Búskum vorum við: Helga Har, Ebba, Anna Sigga, Stefanía og Helga Bergs.
Anna Bjarka og Ragga komu frá Akureyri og Mæja frá Borgarnesi, tvær úr Borginni þurftu að snúa við á Holtavörðuheiðinni og urðu því af gamninu.
Þetta var alveg frábærlega gaman og þakkir skulu þær fá, þær Skoppa og Skrýtla fyrir framtaksemina svo nú ekki sé minnst á þær sem bjuggu um okkur í kotum sínum.
Myndir birtast innan tíðar frá herlegheitunum á myndasíðunni okkar.

27 apríl 2009
Saumahelgi á Blönduósi
Bútós á Blönduósi býður félagskonum á saumahelgi 8.-10. maí
Þið sem hafið fengið póst vinsamlegast tilkynnið af eða á sem fyrst.
Þetta verður síðasta samkoman hjá okkur á þessu vori.
Félagskonur teljum við vera þær sem hafa greitt félagsgjald og eru virkir félagar í Búskunum.
Ef þú ert í vafa kíktu þá á félagalistann hér til hliðar.
Ef einhver telur að sig vanti á listann, hafi sú hin sama samband við Helgu Bergs sem fyrst.
Jóhanna, Ebba, Anna Sigga og Helga B

30 mars 2009
Kvöldfundur Löngumýri 31. mars
Minni á saumafundinn á Löngumýri annað kvöld 31. mars kl. 18:30 ef veður leyfir.
Subscribe to:
Posts (Atom)