Við fórum tvær Búskur að sauma á Skagaströnd á laugardaginn síðasta. Þar var svokallaður Vildarvinasaumadagur hjá þeim "Skaggaskröttunum" en það er sá hluti Bútóskvenna sem kemur frá Skagaströnd sem kalla sig þessu nafni. Þetta var eins og að líkum lætur, frábær dagur, við gerðum ekkert annað en sauma og borða. Nákvæmlega það sem til var ætlast. Mynd: Ásthildur Gunnlaugsdóttir.Set inn myndir frá saumadeginum, Helga Bergs.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli