Jæja, ég (Berglind Snæland) kom við í Virku á fimmtudaginn til að bara kaupa smá dúkavatt til að stinga dúkana sem ég saumaði á Löngumýri. Áður en ég vissi af sá ég kvenmannshendur reiða fram kreditkort til að greiða fyrir 8,5 metra af efni og nýja skurðarmottu. Þegar ég kom aftur út í bíl rankaði ég við mér og áttaði mig á því að þessar kvenmannshendur voru mínar og að ég hafði keypt efni og skurðarmottu en gleymt að kaupa vattið! Hafið þið nokkuð lent í svona?!!
Tekið af vef Berglindar, http://catnap.typepad.com/catnap/ Jólasveinarnir hennar Berglindar, sem ég fann á sömu síðu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli