Fyrsti fundur lofaði góðu, sautján konur mættu í Miklabæjarkirkju til að fræðast um stórverkefni Akrahreppskvenna, altaristöfluna í kirkjunni. Svanhildur Pálsdóttir sagði okkur frá tilurð altaristöflunnar og lýsti framgangi hönnunar og síðan vinnunni við verkið, sem vígt var í sumar.Ég skora bara á ykkur allar áhugakonur um bútasaum, komið við í kirkjunni og lítið á teppið.
Glæsilegt í alla staði og vekur aðdáun á eljusemi og dugnaði þessara eldhuga sem verkið unnu.
A.m.k. eitt hundrað sinnum komu þær saman til skrafs og ráðagerða, stundum bara tvær, stundum fleiri og stundum allar.
Að skoðunarferðinni lokinni settumst við inn á Hótel Varmahlið spjölluðum um vetrardagskrána. Hún er í vinnslu en verður sett hér inn um leið og komin er niðurstaða á fastar dagsetningar, á eftir að ræða við Gunna á Löngumýri og slíkt.
Næstu 5 helgar er Kristrún og staffið í Quiltbúðinni með saumahelgar á Löngumýri, ef helgar skildi kalla, því sumar mæta á fimmtudegi, tekur því varla fyrir þær stöllur að fara heim á milli.
Amk 10 Búskur hafa skráð sig á saumahelgi hjá Kristrúnu.
2 ummæli:
Váááá Mikið er þetta falleg altaristafla. Þakka ykkur fyrir að sýna hana hér.
þetta er alveg yndislegt verkefni og sagan á bakvið er alveg stórkostleg líka. Kirkjan er líka svo látlaus og falleg og Altaristaflan er bara kórónan
Skrifa ummæli