28 nóvember 2006

Muna að skrá sig

Nú njótum við notalegrar jólastemmingar á Löngumýri.
Jólagóðgæti í gogginn (þarf ekkert að hafa með sér) – kertaljós og svo sýnið þið okkur náttúrulega hvað þið ætlið að gefa tengdó í jólagjöf (svo við getum nú apað það eftir!!!)

Jólagjafaskipti –
Komið með litlar handgerðar gjafir, bútasaumaðar eða eitthvað annað bútasaumstengt.
Gjafirnar verða númeraðar, hengdar upp til sýnis og loks dregnar út, og þá verður sko kátt í höllinni.

Janúarfundur - bjálkaþema - hugmynd kynnt.

Engin ummæli: