11 janúar 2006

Frá kvöldfundinum 10. jan

Það var góð stemning á kvöldfundinum á þriðjudaginn, 18 konur mættu með allt sitt hafurtask, saumavélar, búta, hnífa og mottur.

Við höfðum sýningu um áttaleitið, þá voru flestar komnar, búnar að fá sér kaffi í bolla og og komar á fullt í saumaskapnum. Gott er að líta upp augnablik, fá sér meira kaffi og meððí, ef eitthvað slíkt er í boði, sem ekki vantaði í þetta sinni frekar á öðrum fundum hingað til.

Mikið var dáðst að dugnaði og hugmyndaauðgi saumasystra sem sýndu verk sín með stolti.
Myndir frá fundinum eru hér til hliðar. Hægt er að bæta inn í myndum ef einhver hefur myndir sem hún vill koma á vefinn.

Helga B

Engin ummæli: