23 febrúar 2009

Saumasunnudagur 15. mars

Nú fer að líða að saumasunnudegi - hann var settur upp þann 8. mars n.k. - en vegna aðstæðna á Löngumýri - ætlum við að færa hann til sunnudagsins 15. mars. Og við erum að bíða eftir svari frá Gunnari um að byrja fyrr, eða kl. 09:oo og vera til kl. 17:oo ef konur vilja. Þá erum við líka að kanna hvort Svana á Hótel Varmahlíð getur gert okkur eitthvert tilboð í hádegismat - og erum við að meina að fara þangað til hennar í mat. Þetta er ágætis tilbreyting frá þessari hefbundnu heimatilbúnu súpu og salati:):) Ef af því verður - þurfa konur að láta vita hvort þær ætli að mæta, svo við höfum einhverja tölu handa Svönu. Við auglýsum þetta aftur er nær dregur. Þá höfum við haft samband við konur á Blönduósi og Skagaströnd og einnig Kristrúnu í Quiltbúðinni og boðið þeim að koma í heimsókn og sauma með okkur. Og endilega ef þið vitið um einhverjar sem vilja koma - látið þær vita - því fleiri því skemmtilegra.

Engin ummæli: