21 maí 2007

Vorfundur

Konurnar fóru að tínast inn um dyrnar á Löngumýri upp úr klukkan sjö þar sem hitað var upp fyrir aðalatriði kvöldsins, sem var kaffifundur hjá Svönu á Hótel Varmahlíð.
Þrettán konur, auk Svönu, röðuðu sér í kringum borðið og nutu kræsinga sem kitluðu bragðlaukana svo um munaði.
Dregið var í happdrætti og komu vinningar, sem voru þrjár bútasaumsbækur, í hlut Svönu og Bíbíar og Ebba fékk mætingarverðlaun vetrarins, en myndin sýnir einmitt Hlíðarfjallið hennar, verkefni í Fattarakúbb Quiltbúðarinnar.
Að sýna og segja frá er fastur þáttur á hverjum fundi og er afrakstur þessa fundar að finna undir myndahlekknum hér til hægri.

Við þökkum samstarfið í vetur, hittumst hressar og í bútasaumsstuði í haust.
Jóhanna, Anna Sigga, Solla og Helga

14 maí 2007

Flottur dúkur

Uppskrift frá Debbie Mum, smella á fyrirsögn til að fá upp snið og leiðbeiningar.

Helga

Slúttum með stæl

Jæja Búskur.
Þá fer að líða að síðasta fundi vetrarins, en hann er einmitt á mánudaginn næsta, 21. maí.
Þetta verður einfalt, ekki þarf að taka með neitt í gogginn, bara "ábyrjaða" stykkið sem þarf að setja kantinn á eða quilta smá.

Mætum allar hressar og kátar á Löngumýri um sjöleitið eins og vanalega.
Höfum með okkur eitthvað til að sýna og segja frá eða já eins og áður sagði, eitthvað til að hafa milli handanna.

Um kl. 9 sláum við þessu upp í kæruleysi örkum upp í Varmahlíð, nánar tiltekið á Hótel Varmahlíð til Svönu, setjumst þar að kaffiborði, spjöllum, grímumst, hlæjum, fíflumst, sýnum og segjum frá. Svo verður dregið í happdrættinu. Það eru "nokkrir spennandi vinningar"

Hlökkum til að sjá ykkur, Helga, Solla, Anna Sigga og Jóhanna.

17 apríl 2007

Flottur fundur, fallegt handverk

Ellefur konur mættar með góða skapið, sumar með saumavélarnar aðrar með nál og tvinna en margar höfðu með sér eitthvað til að sýna.
Eins og til dæmis þetta hrikalega flotta teppi hennar Valgerðar, alveg æðislega fallegt.



Eða allir dúkarnir hennar Önnu Pálu, ekkert smotterí sem konan er búin að sauma.





16 apríl 2007

Kvöldfundur þriðjudaginn 17 apríl kl. 19:00 - 23:00

Þá er komið að næst síðasta fundinum okkar í vetur en á morgun þriðjudaginn 17 apríl frá kl: 20:00 – 22:00 er kvöldfundur á Löngumýri.

Á dagskránni höfðum við sett upp litavalskynningu en sleppum henni að þessu sinni.
Ef einhverjar hafa verið að sauma blokkir í bjákateppið er um að gera að taka slíkt með, alltaf gaman að raða saman og skoða útkomuna, en við tökum bara upp þráðinn aftur í haust við bjálkana.

Við hellum uppá, allir taka eitthvað smálegt með sér með kaffinu.

Þetta danska listaverk fann ég á síðunni hjá Danska bútasaumsfélaginu.
Öðruvísi kantur, mjög flottur finnst mér.

Kveðja Helga

Flott munstur

Og hér er annað af sömu síðu, virkar ekki mjög flókið en fallegt.

16 mars 2007

Flott námskeið

Það rættist heldur betur úr þátttöku á námskeiðinu með Sveinu á Öngulstöðum, pentun á efni, sem við stóðum fyrir á Löngumýri í kvöld.

12 konur mættu með sínar uppáhalds myndir sem skannaðar voru inn í tölvu og prentaðar á efni sem áður höfðu verið meðhöndluð á sérstakan hátt.

Það verður sko nýr og spennandi bútasaumur sem nú tekur við.

15 mars 2007

Bútóshelgi á Löngumýri

Við Jóhanna voru við sauma á Löngumýri um síðustu helgi í boði Bútós á Blönduósi, svakalega gaman, mikið saumað og töluvert mikið hlegið, etið alveg ógurlega og potturinn notaður langt fram á nótt. Aldrei þessu vant gleymdi ég ekki myndavélinni og tók slatta af myndum.
Smellið á fyrirsögnina til að skoða þær
kveðja Helga

13 mars 2007

Námskeið fimmtudaginn 15. mars

Sælar allar

Næsti fundur hjá Búskum er fimmtudaginn 15. mars n.k.

Hann verður með óvenjulegu sniði, því Sveina Björk frá Öngulstöðum ætlar að koma og halda
námskeið í myndvinnslu mynda og prentun þeirra á efni.

Námskeiðið byrjar kl. 19 og verður til kl. 22.
Hver okkar kemur með mynd sem við viljum prufa að vinna með. Byrjum að undirbúa efnin fyrir prentun, síðan farið í myndvinnsluna og endað á að prenta.

Verð fyrir mannin er 3.500 kr. -
Lágmarksþátttaka er 8, hámark 12-14. Þess vegna er nauðsynlegt að láta skrá sig - Í SÍÐASTA LAGI Á HÁDEGI Á MIÐVIKUDAG.
Eftir námskeiðið getum við setið og spjallað yfir kaffibolla og "nammi".

Bestu kveðjur
Jóhanna, Helga B., Sólveig og Anna Sigga.

Komnar inn nýjar myndir


Þá er ég loksins búin að koma inn myndum frá saumalaugardeginum í febrúar.
Ásthildur Guðmundsdóttir frá Skagaströnd kom til okkar og saumaði með okkur en hún er í Bútós klúbbnum á Blöndósi.
Við vorum því 9 sem skemmtum okkur við saumavélarnar þann daginn.
kv Helga