14 maí 2007

Slúttum með stæl

Jæja Búskur.
Þá fer að líða að síðasta fundi vetrarins, en hann er einmitt á mánudaginn næsta, 21. maí.
Þetta verður einfalt, ekki þarf að taka með neitt í gogginn, bara "ábyrjaða" stykkið sem þarf að setja kantinn á eða quilta smá.

Mætum allar hressar og kátar á Löngumýri um sjöleitið eins og vanalega.
Höfum með okkur eitthvað til að sýna og segja frá eða já eins og áður sagði, eitthvað til að hafa milli handanna.

Um kl. 9 sláum við þessu upp í kæruleysi örkum upp í Varmahlíð, nánar tiltekið á Hótel Varmahlíð til Svönu, setjumst þar að kaffiborði, spjöllum, grímumst, hlæjum, fíflumst, sýnum og segjum frá. Svo verður dregið í happdrættinu. Það eru "nokkrir spennandi vinningar"

Hlökkum til að sjá ykkur, Helga, Solla, Anna Sigga og Jóhanna.

Engin ummæli: