13 mars 2007

Námskeið fimmtudaginn 15. mars

Sælar allar

Næsti fundur hjá Búskum er fimmtudaginn 15. mars n.k.

Hann verður með óvenjulegu sniði, því Sveina Björk frá Öngulstöðum ætlar að koma og halda
námskeið í myndvinnslu mynda og prentun þeirra á efni.

Námskeiðið byrjar kl. 19 og verður til kl. 22.
Hver okkar kemur með mynd sem við viljum prufa að vinna með. Byrjum að undirbúa efnin fyrir prentun, síðan farið í myndvinnsluna og endað á að prenta.

Verð fyrir mannin er 3.500 kr. -
Lágmarksþátttaka er 8, hámark 12-14. Þess vegna er nauðsynlegt að láta skrá sig - Í SÍÐASTA LAGI Á HÁDEGI Á MIÐVIKUDAG.
Eftir námskeiðið getum við setið og spjallað yfir kaffibolla og "nammi".

Bestu kveðjur
Jóhanna, Helga B., Sólveig og Anna Sigga.

Engin ummæli: