Konurnar fóru að tínast inn um dyrnar á Löngumýri upp úr klukkan sjö þar sem hitað var upp fyrir aðalatriði kvöldsins, sem var kaffifundur hjá Svönu á Hótel Varmahlíð.Þrettán konur, auk Svönu, röðuðu sér í kringum borðið og nutu kræsinga sem kitluðu bragðlaukana svo um munaði.
Dregið var í happdrætti og komu vinningar, sem voru þrjár bútasaumsbækur, í hlut Svönu og Bíbíar og Ebba fékk mætingarverðlaun vetrarins, en myndin sýnir einmitt Hlíðarfjallið hennar, verkefni í Fattarakúbb Quiltbúðarinnar.
Að sýna og segja frá er fastur þáttur á hverjum fundi og er afrakstur þessa fundar að finna undir myndahlekknum hér til hægri.
Við þökkum samstarfið í vetur, hittumst hressar og í bútasaumsstuði í haust.
Jóhanna, Anna Sigga, Solla og Helga
Við þökkum samstarfið í vetur, hittumst hressar og í bútasaumsstuði í haust.
Jóhanna, Anna Sigga, Solla og Helga





