Við opnum húsið kl. 9 að morgni og höfum opið til amk. kl. 17:00
Endilega taka með sér vinkonur og kynna þær fyrir bútasaumnum. Ekkert gjald er tekið fyrir daginn nema kostnaður við hádegisverð sem verður að öllum líkindum á Hótel Varmahlíð hjá Svönu.
24 febrúar 2009
23 febrúar 2009
Prjónakaffi
Auglýsing frá prjónakonum og áhugafólki um handverk.
Prjónakaffi verður í Húsi Frítímans á Sauðárkróki á fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 19:30
Allir velkomnir.
Prjónakaffi verður í Húsi Frítímans á Sauðárkróki á fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 19:30
Allir velkomnir.
Saumasunnudagur 15. mars
Nú fer að líða að saumasunnudegi - hann var settur upp þann 8. mars n.k. - en vegna aðstæðna á Löngumýri - ætlum við að færa hann til sunnudagsins 15. mars. Og við erum að bíða eftir svari frá Gunnari um að byrja fyrr, eða kl. 09:oo og vera til kl. 17:oo ef konur vilja. Þá erum við líka að kanna hvort Svana á Hótel Varmahlíð getur gert okkur eitthvert tilboð í hádegismat - og erum við að meina að fara þangað til hennar í mat. Þetta er ágætis tilbreyting frá þessari hefbundnu heimatilbúnu súpu og salati:):) Ef af því verður - þurfa konur að láta vita hvort þær ætli að mæta, svo við höfum einhverja tölu handa Svönu. Við auglýsum þetta aftur er nær dregur. Þá höfum við haft samband við konur á Blönduósi og Skagaströnd og einnig Kristrúnu í Quiltbúðinni og boðið þeim að koma í heimsókn og sauma með okkur. Og endilega ef þið vitið um einhverjar sem vilja koma - látið þær vita - því fleiri því skemmtilegra.
05 febrúar 2009
Kvöldufundur þriðjudaginn 10. febrúar
Þriðjudagur 10. febrúar - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga eða aðra sem áhuga hafa.
Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði.
Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar.
Sýna og segja frá.
Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga eða aðra sem áhuga hafa.
Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði.
Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar.
Sýna og segja frá.
Auglýsing frá Þórdísi í Hérðasbókasafninu
Takið eftir - Nýjar handvinnubækur
Mikið úrval af nýjum, fallegum og mjög spennandi handavinnubókum, einkum bútasaums- og prjónabókum, s.s. Kaffe Fassett, Marti Michell, Debbie Bliss, Rowan, Kim Hargreaves og fl.
Allar bækurnar á 10 daga láni
Lítið endilega við
Héraðsbókasafnið
22 janúar 2009
Myndir komnar inn
24 desember 2008
Jólin garðinn ganga í...
Gleðilega jólahátíð allar Búskur og bútasaumsunnendur vítt og breytt um landið.
16 desember 2008
Kvöldfundur 20. janúar.
ATHUGIÐ - breyting á fundardegi - janúarfundurinn verður 20. janúar en ekki 13. eins og áður var ákveðið, vegna breytinga hjá Gunnari.
09 desember 2008
Jólafundur 2008
Notalegum jólafundi lokið, fámennt en góðmennt, Jóhanna, Ebba, Anna Sigga, Sólveig Sig. og Sigga Valgarðs sátu yfir góðgæti og spjalli. Sigga hlaut happdrættisvinninginn góða, pakkning með sniði og efni frá GE design, sem hún kallar Húsfriður.Helga komst því miður ekki, fann upp á því að fara að handleggsbrjóta sig í gærmorgun, aarrrrrgggggg....... enginn saumaskapur næstu vikurnar á þeim bænum.
Set hér inn leiðbeiningar að þessu veggteppi, tilvalið t.d. að útbúa jóladagatal eða bæta á þetta einhverjum jólaskreytingum.
Bara smella á fyrirsögnina til að komast inn á leiðbeiningasíðuna (enska)
06 desember 2008
Jólafundur á Löngumýri
Mánudagur 8. desember - kl: 20:00 - 22:00
Breyting: Gunnar hafði tvíbókað daginn, svo við þurftum að færa fundinn fram um einn dag.
Við komum saman á Löngumýri, höfum með okkur litla innpakkaða gjöf, skemmtilegast eitthvað heimatilbúið eða tengt bútasaum en halda verði í lágmarki. Eigum huggulega stund við kertaljós og góðgæti. Sýna og segja frá.
Breyting: Gunnar hafði tvíbókað daginn, svo við þurftum að færa fundinn fram um einn dag.
Við komum saman á Löngumýri, höfum með okkur litla innpakkaða gjöf, skemmtilegast eitthvað heimatilbúið eða tengt bútasaum en halda verði í lágmarki. Eigum huggulega stund við kertaljós og góðgæti. Sýna og segja frá.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
