28 nóvember 2006

Muna að skrá sig

Nú njótum við notalegrar jólastemmingar á Löngumýri.
Jólagóðgæti í gogginn (þarf ekkert að hafa með sér) – kertaljós og svo sýnið þið okkur náttúrulega hvað þið ætlið að gefa tengdó í jólagjöf (svo við getum nú apað það eftir!!!)

Jólagjafaskipti –
Komið með litlar handgerðar gjafir, bútasaumaðar eða eitthvað annað bútasaumstengt.
Gjafirnar verða númeraðar, hengdar upp til sýnis og loks dregnar út, og þá verður sko kátt í höllinni.

Janúarfundur - bjálkaþema - hugmynd kynnt.

19 nóvember 2006

Jólafundur 5. desember

Jólafundurinn okkar verður 5. desember frá kl. 20.00 - 22.00
Muna eftir að skrá sig hjá einhverri okkar á þann fund.

12 nóvember 2006

Notalegur saumasunnudagur

Þá er þessum notalega saumasunnudegi lokið.
Tíu Búskur mættu hressar og kátar með allt sitt hafurtask.
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, fyrrum Búska kíkti í heimsókn, Kristrún í Quiltbúðinni kom með fullan bíl af efnum og bættum við flestar vel í safnið.
Myndir frá deginum komnar á myndahlekkinn.

Jóhanna, Anna Sigga og Helga

Er að leggja í hann....

Sælar allar Búskur.

Ég var að skoða færðina hjá vegagerðinni, snjókoma og snjór á vegi en logn svo ég er að leggja í hann.
Þið getið hringt í mig í síma 863 6114 ef þið viljið nánari upplýsingar um færð áður en þið leggið af stað.

Helga

10 nóvember 2006

Kristrún kl. 13:00

Kristrún í Quiltbúðinni verður hjá okkur kl. 13:00 á sunnudag.

Það er að sjálfsögðu smá fyrirvari varðandi veður og færð en eins og er - er ófært til Akureyrar,
króksarar innlyksa þar í kvöld.

Þannig að ef veðrið verður slæmt á sunnudag kemur hún að sjálfsögðu ekki.

Komnar 6 á skrá

Jæja, þetta er að skána.

Sex konur búnar að skrá sig á saumasunnudaginn auk okkar fjögurra.
Við höldum okkar áætlun í von um að fleiri láti sjá sig.

Kristrún úr Quiltbúðinni kemur með vörur.

Sísa kemst ekki með tólasýningu núna og ekki heldur Svana frá Öngulstöðum.
Við ráðgerum að fá þær síðar, Svana yrði þá jafnvel með námskeið - prentun á efni.

Við vonum að veðurguðirnir verði okkur hollir.

Helga, Anna Sigga, Solla og Jóhanna

09 nóvember 2006

Að lognast út af......?????

Jæja Búskur góðar.

Þetta lítur ekki vel út, aðeins 2 búnar að skrá sig fyrir saumasunnudaginn auk okkar, Jóhönnu, Sollu, Önnu Siggu og Helgu.

Nú er að ákveða sig og láta vita, við sláum þetta af nema við fáum ca. 10 konur í viðbót.

kv Helga, Solla, Jóhanna og Anna Sigga.

08 nóvember 2006

Saumasunnudagur 12. nóvember

Bara að minna á saumasunnudaginn, húsið verður opið frá kl. 10:00 til 16:00 og muna að skrá sig hjá einhverri okkar.
Við þurfum að vita hve margar ætla að mæta í hádegismatinn, svo við getum ákveðið hvaða stærð af potti við þurfum undir súpuna.

Helga

18 október 2006

Kvöldfundur 19. okt 2006

Það eru komnar fáeinar myndir frá fundinu undir Búsku- myndir.
Helga hefur ljósrit af óvissunni ef einhver hefur áhuga.

Það voru 9 konur sem mættu á fundinn í kvöld.
Það fer að verða spurning um hvort hægt sé að halda þessu úti með svona slakri mætingu því við húsaleigan er 6000 kr fyrir kvöldið.
Miðað við að við séum að greiða kr. 500 fyrir kvöldið á mann, þurfum við að vera 12 sem mætum til að halda ballans á dæminu.

15 október 2006

Óvissan - heimavinna

Fyrir óvissuverkefnið á næsta fundi.

6 ræmur 2 og 5/8" x 16"
efni í bak 40 x 65 cm
bómullarvatt 40 x 65 cm.
Smá afganga af nokkrum litum, 1-3 ljósa og nokkra dökka.

Ræmurnar mega vera allar eins eða mismunandi litir allt eftir smekk hvers og eins.

Við þurfum að skera smávegis í þessu verkefni, svo gott ef einhverjir taka með sér skurðarmottu.

Taka með sér eitthvað smálegt í gogginn að vanda.