18 maí 2006
Myndir frá fundi 9. maí
Þetta var góður fundur, mikið spjallað og nokkuð borðað.
Jóhanna sýndi okkur myndir sem hún tók á ferð sinni til Manchester í Ameríku en hún var þar líka á námskeiði.Einnig var hún með sitthvað til að sýna sem henni hafði áskotnast í ferðinni. Saumavélarnar voru hvíldar að þessu sinni.
Við ræddum um að byrja aftur í lok ágúst eða byrjun september í haust.
Helga Friðbjörns og Beta Pálma vilja hætta í nefndinni, Helga B og Sólveig P eru til í að vera áfram.
Jóhanna Björns og Anna Friðriks sögðust tilbúnar að koma inn í staðinn og ef fleiri hafa áhuga vinsamlegast látið í ykkur heyra. Það er hægt að senda póst á netföngin okkar allra.
Sumarkveðja Helga B
08 maí 2006
Kvöldfundur 9. maí
Þetta er klárufundur en Jóhanna Björnsdóttir ætlar að sýna og segja frá nýjungum í Ameríkunni en hún er nýkomin þaðan.
Mætum allar á síðasta fund vetrarins. Fyrirkomulag með sama hætti og áður.
06 apríl 2006
Kvöldfundi 6. apríl - FRESTAÐ
05 apríl 2006
Kvöldfundur 6. april
Þetta verður hefðbundinn fundur. Á dagskránni stóð að Sísa yrði með græjusýningu en hún er búin að koma svo við verðum bara í rólegheitunum við okkar iðju.
Komið með eitthvað páskalegt sem þið eigið, sýnum og segjum frá.
Takið með ykkur ef þið eigið snið af fallegum páskaverkefnum við verðum ekki með ljósrit að þessu sinni.
18 mars 2006
Frá kvöldfundi 15. mars
13 mars 2006
Kvöldfundur 15. mars
Mars - miðvikudagskvöldið 15. mars kl: 19 – 23 – vinnufundur á Löngumýri
Stjörnuþema - Þó svo að daginn sé blessunarlega farið að lengja þá ætlum við að leggja fram fáeinar fallegar stjörnur sem gaman er að sauma. Takið með ykkur stjörnustykkin ykkar og hugmyndir með stjörnumynstrum. Félagar sýna og segja frá.
16 febrúar 2006
Saumasunnudagur á Löngumýri
Febrúar: saumadagur 19. febrúar 2006. Kl: 10- 16 á Löngumýri
Kristrún í Quiltbúðinni kemur í heimsókn full af ferskum hugmyndum. Hún tekur með sér efni, snið og ýmislegt forvitnilegt. Gott að grípa budduna með. Nú er upplagt tækifæri til að koma sér í gang með eitthvað nýtt og spennandi. Svo er bara að sauma það sem hugurinn girnist. Félagar sýna og segja frá. Endilega skráið ykkur í matinn hjá einhverri okkar. Gjald fyrir daginn 1500 kr.
11 janúar 2006
Frá kvöldfundinum 10. jan
Við höfðum sýningu um áttaleitið, þá voru flestar komnar, búnar að fá sér kaffi í bolla og og komar á fullt í saumaskapnum. Gott er að líta upp augnablik, fá sér meira kaffi og meððí, ef eitthvað slíkt er í boði, sem ekki vantaði í þetta sinni frekar á öðrum fundum hingað til.
Mikið var dáðst að dugnaði og hugmyndaauðgi saumasystra sem sýndu verk sín með stolti.
Myndir frá fundinum eru hér til hliðar. Hægt er að bæta inn í myndum ef einhver hefur myndir sem hún vill koma á vefinn.
Helga B
09 janúar 2006
Saumafundur á Löngumýri
Efnisþörf í Ruslapokann ( ef einhver vill hafa með sér)
25 cm ytri poki
25 cm innri poki
25 cm þunnt vatt (ég notaði gula bílatusku )
Bútur af frönskum rennilás ca. 15 cm
Bútur af mottugúmmíi (fæst í rúmfatalagernum)
15 x 15 cm pappi
20“ (50 cm) kjólateinn, (ég notaði gataðan málm sem er notaður til að festa upp rafmagnsrör, fékk á verkstæði)
Efnisþörf í Tólatöskuna ( ef einhver vill hafa með sér)
Í tólatöskuna (undir bútasaumsáhöldin) er ágætt að hafa með sér bútakassann, fattara (fattquarter bútar) og hálfa fattara og þaðan af minna.
Svo þarf 75cm af tveimur mismunandi efnum.