23 október 2007

Kikið á myndirnar

Var að setja inn nokkrar myndir frá síðasta fundi okkar Búsknanna.
Helga

Dagskrá Búsknanna 2007-2008

18. okt. – fimmtudagur 2007 kl: 19:00 – 23:00 kvöldfundur á Löngumýri
Fyrsti fundur haustsins. Ekkert sérstakt þema þetta fyrsta kvöld en við hristum okkur saman, tökum fram tólin og hefjumst handa.
Vetrardagskráin kynnt. Svo stefnum við á að vinna áfram í teppinu góða – sem við byrjuðum á sameiginlega í fyrra. Við hellum uppá, allir taka eitthvað smálegt með sér með kaffinu.

18. nóvember 2007 kl: 10:00 – 16:00 saumasunnudagur á Löngumýri
Jólaþema - Helga Friðbjörns og Svana ætla að vera með námskeið í Paper Piecing – og kenna okkur að búa til lítil sniðug smástykki sem tengjast jólunum. Við fáum seiðandi súpu og gullið salat í hádegisverð. Þið þurfið að skrá ykkur hjá einhverri okkar fyrir föstudaginn 16. nóv. svo við höfum einhverja hugmynd um fjölda í mat.

4. desember 2007 þriðjudagur kl: 20:00 – 22:00 jólafundur á Löngumýri
Nú njótum við notalegrar jólastemmingar á Löngumýri. Jólagóðgæti í gogginn – kertaljós og svo sýnið þið okkur náttúrulega hvað þið ætlið að gefa tengdó í jólagjöf (svo við getum nú apað það eftir!!!) Jólagjafaskipti – Komið með litlar handgerðar gjafir, bútasaumaðar eða eitthvað annað bútasaumstengt. Gjafirnar verða númeraðar, hengdar upp til sýnis og loks dregnar út, og þá verður sko kátt í höllinni.

10. janúar 2008 fimmtudagur kl: 19.00 – 23.00 - kvöldfundur á Löngumýri.
Ræmuhappadrætti. Allar koma með 3 ræmur, sem mælast 3” – 42” (breidd efnis) hver ræma.

23. febrúar 2008 laugardagur kl. 09:00 – 16:00 ca. - reynum AFTUR
Saumalaugardagur með Bútóskonum á Blönduósi og Skagaströnd ásamt vonandi Kristrúnu í Quiltbúðinni og hennar konum. Nú þarf að skrá sig hjá einhverri okkar fyrir fimmtudag svo við höfum einhverja hugmynd um fjölda í mat.

27. mars 2008 fimmtudagur kl. 19:00 – 23:00 kvöldfundur á Löngumýri
Hér ætlum við að reyna að vera með námskeið í Crazy Quilt – nánar auglýst síðar.

21. apríl 2008 mánudagur kl. 19:00 – 23:00 kvöldfundur á Löngumýri
Einhvers konar kynning eða námskeið – nánar auglýst síðar

24. maí 2008 laugardagur - Lokafundur.
ÓVISSA - ÓVISSA - ÓVISSA

Góða skemmtun!

17 október 2007

Saumahelgi Quiltbúðarinnar 11-14 október

Ég var að setja inn myndir frá þriðju saumahelgi Quiltbúðarinnar á Löngumýri, við Jóhanna Björns sátum þar og saumuðu frá fimmtudegi til sunnudags ásamt 30 öðrum konum. Ekkert smá gaman hjá okkur.
Ebba og Anna Sigga voru saumahelgi nr 2.
Myndin er af dúk saumuðum af Mæju í Borgarnesi, Jóhönnu Maríu Jónsdóttur.

11 október 2007

Fyrsti fundur

Fyrsti fundurinn var haldinn þann 19. september. Góð mæting eða 16 félagar mættu.
Dagskrá vetrarins hefur verið send út á öll netföng sem við höfum, ef einhvern vantar dagskrá er bara að hafa samband við Jóhönnu.
Myndir frá fundinum komnar inn.

21 maí 2007

Vorfundur

Konurnar fóru að tínast inn um dyrnar á Löngumýri upp úr klukkan sjö þar sem hitað var upp fyrir aðalatriði kvöldsins, sem var kaffifundur hjá Svönu á Hótel Varmahlíð.
Þrettán konur, auk Svönu, röðuðu sér í kringum borðið og nutu kræsinga sem kitluðu bragðlaukana svo um munaði.
Dregið var í happdrætti og komu vinningar, sem voru þrjár bútasaumsbækur, í hlut Svönu og Bíbíar og Ebba fékk mætingarverðlaun vetrarins, en myndin sýnir einmitt Hlíðarfjallið hennar, verkefni í Fattarakúbb Quiltbúðarinnar.
Að sýna og segja frá er fastur þáttur á hverjum fundi og er afrakstur þessa fundar að finna undir myndahlekknum hér til hægri.

Við þökkum samstarfið í vetur, hittumst hressar og í bútasaumsstuði í haust.
Jóhanna, Anna Sigga, Solla og Helga

14 maí 2007

Flottur dúkur

Uppskrift frá Debbie Mum, smella á fyrirsögn til að fá upp snið og leiðbeiningar.

Helga

Slúttum með stæl

Jæja Búskur.
Þá fer að líða að síðasta fundi vetrarins, en hann er einmitt á mánudaginn næsta, 21. maí.
Þetta verður einfalt, ekki þarf að taka með neitt í gogginn, bara "ábyrjaða" stykkið sem þarf að setja kantinn á eða quilta smá.

Mætum allar hressar og kátar á Löngumýri um sjöleitið eins og vanalega.
Höfum með okkur eitthvað til að sýna og segja frá eða já eins og áður sagði, eitthvað til að hafa milli handanna.

Um kl. 9 sláum við þessu upp í kæruleysi örkum upp í Varmahlíð, nánar tiltekið á Hótel Varmahlíð til Svönu, setjumst þar að kaffiborði, spjöllum, grímumst, hlæjum, fíflumst, sýnum og segjum frá. Svo verður dregið í happdrættinu. Það eru "nokkrir spennandi vinningar"

Hlökkum til að sjá ykkur, Helga, Solla, Anna Sigga og Jóhanna.

17 apríl 2007

Flottur fundur, fallegt handverk

Ellefur konur mættar með góða skapið, sumar með saumavélarnar aðrar með nál og tvinna en margar höfðu með sér eitthvað til að sýna.
Eins og til dæmis þetta hrikalega flotta teppi hennar Valgerðar, alveg æðislega fallegt.



Eða allir dúkarnir hennar Önnu Pálu, ekkert smotterí sem konan er búin að sauma.





16 apríl 2007

Kvöldfundur þriðjudaginn 17 apríl kl. 19:00 - 23:00

Þá er komið að næst síðasta fundinum okkar í vetur en á morgun þriðjudaginn 17 apríl frá kl: 20:00 – 22:00 er kvöldfundur á Löngumýri.

Á dagskránni höfðum við sett upp litavalskynningu en sleppum henni að þessu sinni.
Ef einhverjar hafa verið að sauma blokkir í bjákateppið er um að gera að taka slíkt með, alltaf gaman að raða saman og skoða útkomuna, en við tökum bara upp þráðinn aftur í haust við bjálkana.

Við hellum uppá, allir taka eitthvað smálegt með sér með kaffinu.

Þetta danska listaverk fann ég á síðunni hjá Danska bútasaumsfélaginu.
Öðruvísi kantur, mjög flottur finnst mér.

Kveðja Helga

Flott munstur

Og hér er annað af sömu síðu, virkar ekki mjög flókið en fallegt.