18 maí 2006

Myndir frá fundi 9. maí

Ég var að setja inn myndir sem ég tók á kvöldfundinum 9. maí en þær er að finna undir hlekknum BÚSKUMYNDIR hér til hægri.

Þetta var góður fundur, mikið spjallað og nokkuð borðað.
Jóhanna sýndi okkur myndir sem hún tók á ferð sinni til Manchester í Ameríku en hún var þar líka á námskeiði.Einnig var hún með sitthvað til að sýna sem henni hafði áskotnast í ferðinni. Saumavélarnar voru hvíldar að þessu sinni.
Við ræddum um að byrja aftur í lok ágúst eða byrjun september í haust.

Helga Friðbjörns og Beta Pálma vilja hætta í nefndinni, Helga B og Sólveig P eru til í að vera áfram.
Jóhanna Björns og Anna Friðriks sögðust tilbúnar að koma inn í staðinn og ef fleiri hafa áhuga vinsamlegast látið í ykkur heyra. Það er hægt að senda póst á netföngin okkar allra.

Sumarkveðja Helga B

08 maí 2006

Kvöldfundur 9. maí

Næsti fundur verður 9. maí kl. 19:00-23:00
Þetta er klárufundur en Jóhanna Björnsdóttir ætlar að sýna og segja frá nýjungum í Ameríkunni en hún er nýkomin þaðan.

Mætum allar á síðasta fund vetrarins. Fyrirkomulag með sama hætti og áður.

06 apríl 2006

Kvöldfundi 6. apríl - FRESTAÐ

Við höfum ákveðið að slá af fundinn í kvöld vegna leiðinlegs veðurs og færðar, um óákveðinn tíma.

05 apríl 2006

Kvöldfundur 6. april

Næsti kvöldfundur verður 6. apríl.
Þetta verður hefðbundinn fundur. Á dagskránni stóð að Sísa yrði með græjusýningu en hún er búin að koma svo við verðum bara í rólegheitunum við okkar iðju.
Komið með eitthvað páskalegt sem þið eigið, sýnum og segjum frá.
Takið með ykkur ef þið eigið snið af fallegum páskaverkefnum við verðum ekki með ljósrit að þessu sinni.

18 mars 2006

Frá kvöldfundi 15. mars

Góð stemning var á kvöldfundinum en sautján konur komu sér fyrir á Löngumýri með saumavélar og annað hafurtask sem fylgir bútasaumnum. Myndir frá Jóhönnu Björnsdóttur eru komnar inn.

13 mars 2006

Kvöldfundur 15. mars

Mars - miðvikudagskvöldið 15. mars kl: 19 – 23 – vinnufundur á Löngumýri

Stjörnuþema - Þó svo að daginn sé blessunarlega farið að lengja þá ætlum við að leggja fram fáeinar fallegar stjörnur sem gaman er að sauma. Takið með ykkur stjörnustykkin ykkar og hugmyndir með stjörnumynstrum. Félagar sýna og segja frá.



16 febrúar 2006

Saumasunnudagur á Löngumýri

Febrúar: saumadagur 19. febrúar 2006. Kl: 10- 16 á Löngumýri

Kristrún í Quiltbúðinni kemur í heimsókn full af ferskum hugmyndum. Hún tekur með sér efni, snið og ýmislegt forvitnilegt. Gott að grípa budduna með. Nú er upplagt tækifæri til að koma sér í gang með eitthvað nýtt og spennandi. Svo er bara að sauma það sem hugurinn girnist. Félagar sýna og segja frá. Endilega skráið ykkur í matinn hjá einhverri okkar. Gjald fyrir daginn 1500 kr.

11 janúar 2006

Frá kvöldfundinum 10. jan

Það var góð stemning á kvöldfundinum á þriðjudaginn, 18 konur mættu með allt sitt hafurtask, saumavélar, búta, hnífa og mottur.

Við höfðum sýningu um áttaleitið, þá voru flestar komnar, búnar að fá sér kaffi í bolla og og komar á fullt í saumaskapnum. Gott er að líta upp augnablik, fá sér meira kaffi og meððí, ef eitthvað slíkt er í boði, sem ekki vantaði í þetta sinni frekar á öðrum fundum hingað til.

Mikið var dáðst að dugnaði og hugmyndaauðgi saumasystra sem sýndu verk sín með stolti.
Myndir frá fundinum eru hér til hliðar. Hægt er að bæta inn í myndum ef einhver hefur myndir sem hún vill koma á vefinn.

Helga B

09 janúar 2006

Saumafundur á Löngumýri

Við minnum á saumafundinn á Löngumýri annað kvöld kl. 19:00

Við verðum með snið að tveimur verkefnum - Ruslapoka og Tólatösku.

Efnisþörf í Ruslapokann ( ef einhver vill hafa með sér)

25 cm ytri poki

25 cm innri poki

25 cm þunnt vatt (ég notaði gula bílatusku )

Bútur af frönskum rennilás ca. 15 cm

Bútur af mottugúmmíi (fæst í rúmfatalagernum)

15 x 15 cm pappi

20“ (50 cm) kjólateinn, (ég notaði gataðan málm sem er notaður til að festa upp rafmagnsrör, fékk á verkstæði)


Efnisþörf í Tólatöskuna ( ef einhver vill hafa með sér)

Í tólatöskuna (undir bútasaumsáhöldin) er ágætt að hafa með sér bútakassann, fattara (fattquarter bútar) og hálfa fattara og þaðan af minna.

Svo þarf 75cm af tveimur mismunandi efnum.

Annars verður þetta með hefðbundum hætti, við hellum uppá, þið komið með eitthvað í gogginn ef þið viljið.

08 janúar 2006

Fundur hjá stjórninni

Stjórn Búsknanna kemur saman í kvöl kl 20:00 hjá Helgu Friðbjörns í Varmahlíð til skrafs og ráðagerða hvað varðar dagskrána fram á vorið.