13 mars 2006

Kvöldfundur 15. mars

Mars - miðvikudagskvöldið 15. mars kl: 19 – 23 – vinnufundur á Löngumýri

Stjörnuþema - Þó svo að daginn sé blessunarlega farið að lengja þá ætlum við að leggja fram fáeinar fallegar stjörnur sem gaman er að sauma. Takið með ykkur stjörnustykkin ykkar og hugmyndir með stjörnumynstrum. Félagar sýna og segja frá.



16 febrúar 2006

Saumasunnudagur á Löngumýri

Febrúar: saumadagur 19. febrúar 2006. Kl: 10- 16 á Löngumýri

Kristrún í Quiltbúðinni kemur í heimsókn full af ferskum hugmyndum. Hún tekur með sér efni, snið og ýmislegt forvitnilegt. Gott að grípa budduna með. Nú er upplagt tækifæri til að koma sér í gang með eitthvað nýtt og spennandi. Svo er bara að sauma það sem hugurinn girnist. Félagar sýna og segja frá. Endilega skráið ykkur í matinn hjá einhverri okkar. Gjald fyrir daginn 1500 kr.

11 janúar 2006

Frá kvöldfundinum 10. jan

Það var góð stemning á kvöldfundinum á þriðjudaginn, 18 konur mættu með allt sitt hafurtask, saumavélar, búta, hnífa og mottur.

Við höfðum sýningu um áttaleitið, þá voru flestar komnar, búnar að fá sér kaffi í bolla og og komar á fullt í saumaskapnum. Gott er að líta upp augnablik, fá sér meira kaffi og meððí, ef eitthvað slíkt er í boði, sem ekki vantaði í þetta sinni frekar á öðrum fundum hingað til.

Mikið var dáðst að dugnaði og hugmyndaauðgi saumasystra sem sýndu verk sín með stolti.
Myndir frá fundinum eru hér til hliðar. Hægt er að bæta inn í myndum ef einhver hefur myndir sem hún vill koma á vefinn.

Helga B

09 janúar 2006

Saumafundur á Löngumýri

Við minnum á saumafundinn á Löngumýri annað kvöld kl. 19:00

Við verðum með snið að tveimur verkefnum - Ruslapoka og Tólatösku.

Efnisþörf í Ruslapokann ( ef einhver vill hafa með sér)

25 cm ytri poki

25 cm innri poki

25 cm þunnt vatt (ég notaði gula bílatusku )

Bútur af frönskum rennilás ca. 15 cm

Bútur af mottugúmmíi (fæst í rúmfatalagernum)

15 x 15 cm pappi

20“ (50 cm) kjólateinn, (ég notaði gataðan málm sem er notaður til að festa upp rafmagnsrör, fékk á verkstæði)


Efnisþörf í Tólatöskuna ( ef einhver vill hafa með sér)

Í tólatöskuna (undir bútasaumsáhöldin) er ágætt að hafa með sér bútakassann, fattara (fattquarter bútar) og hálfa fattara og þaðan af minna.

Svo þarf 75cm af tveimur mismunandi efnum.

Annars verður þetta með hefðbundum hætti, við hellum uppá, þið komið með eitthvað í gogginn ef þið viljið.

08 janúar 2006

Fundur hjá stjórninni

Stjórn Búsknanna kemur saman í kvöl kl 20:00 hjá Helgu Friðbjörns í Varmahlíð til skrafs og ráðagerða hvað varðar dagskrána fram á vorið.

07 desember 2005

Jólaklúbbfundur á Löngumýri

Jólaklúbbfundurinn á Löngmýri á morgun hefst kl. 20:00 eins og áður hefur komið fram og stendur til kl. 22:00
Við njótum notalegrar jólastemmingar í stofunni á Löngumýri.
Jólate og góðgæti verður í boði.
Félagar sýna og segja frá. Jólagjafaskipti - endurtökum leikinn frá því í fyrra. Komið með litlar handgerðar gjafir, bútasaumaðar eða eitthvað annað bútasaumstengt. Gjafirnar verða númeraðar og hengdar upp til sýnis og loks dregnar út og allir fá þá eitthvað fallegt. Ef einhver vill hafa með sér saumavélina eða eitthvað til að sauma verður gert ráð fyrir því.
En svo er líka bara hægt að spjalla og hafa það notalegt þessa kvöldstund.

Svana, Helga B, Helga F, Solla og Beta.

22 nóvember 2005

Fimmtudagur 8. desember

Næsti fundur er jólaklúbbfundur fimmtudaginn 8. desember frá kl: 20 -22 á Löngumýri.

13 nóvember 2005

Myndir - 13. nóv 2005


Hér er hægt að sjá nokkrar myndir frá sunnudeginum, níu konur voru mættar til að bútast og læra pappírssaum hjá Svönu.
Við slepptum því að kaupa mat þar sem svo fáar konur voru búnar að skrá sig en elduðum súpu og gerðum salat. Þessu var rennt niður ásamt heimabakaða brauðinu hennar Svönu.
Það var Auður Haraldsdóttir sem fór heim með happdrættisvinninginn að þessu sinni.

Til að skoða myndir smellirðu á fyrirsögnina síðan á fjólubláa hnappinn - View pictures. Síðan er hægt að smella á hverja mynd fyrir sig eða smella á þar sem stendur View as a slide show og þá birtast myndirnar ein af annarri.

12 nóvember 2005

Saumasunnudagur 13. nóv

Saumasunnudagur 13. nóvember kl: 10 – 16 á Löngumýri

Við hefjum daginn á sýnikennslu á Paper piecing og verðum með fullt af munstrum í boði.
Í Paper piecing þarf oft mjög litla búta, með stærri bútum og því tilvalið að koma með afgangapokann og vinna svolítið upp úr honum.
Með þessari aðferð er t.d. hægt að gera jólakortin í ár.

Við fáum ljúffengan hádegisverð á Löngumýri og höfum það virkilega huggulegt.
Þið þurfið helst að skrá ykkur hjá Svönu fyrir föstudaginn 11. nóvember svo við höfum einhverja hugmynd um fjölda í mat, kr. 1500,-

Bútahappdrætti – Allir koma með 4 köflótta eða röndótta búta, 8 x 8 tommur og setja í pottinn. Ekki verður amalegt að detta í þann lukkupott.

07 nóvember 2005

Hetjuteppi afhent

Hér er einn hópurinn að afhenda hetjuteppi en þetta eru þær Helga Bergsdóttir, Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Elísabet Pámadóttir og Sigríður Friðriksdóttir. Anna S. Hróðmarsdóttir var fjarverandi.