Munið saumakvöldið í kvöld 5. október Það verður smá verkefni ef áhugi er fyrir hendi. Það þarf að koma með tvo 12"
búta af efni, má vera í sama lit eða dökkur og ljós.
Vatt 12" og filt, ásamt útsaumsgarni og tvinna
sem passar við, eina tölur og auðvitað saumavélina.
Vonum
að veðrið trufli ekki mikið. Sjáumst
í saumastuði
Ebba og Anna Sigga
Á Hátíð hafsins (2009) voru opnaðar þrjár nýjar sýningar. Það eru sýningarnar Sagaseglanna, Hafnarfjarðarhöfn í 100 ár sem er farandsýning í nýjasta sal safnsins og sýning frá félagi íslenskra bútasaumskvenna Hafið.
Myndin hér að ofan hlaut 2. verðlaun í flokknum, Hafið.
Sælar allar saumakonur.
Nú ætlum við að hittast aftur eftir gott jólafrí mánudaginn 12. janúar kl. 19:00 í Tjarnarbæ.
Sjáumst hressar og í saumastuði.
Ebba.