05 desember 2007

Myndir frá jólafundinum

Ég var að setja inn myndir frá jólafundinum okkar sem var á Löngumýri í gærkveldi.
Við sátum þar tíu konur og áttum notalega stund, með jólateið hennar Jóhönnu, ávaxtasalta, piparkökur og fleira góðgæti. Jólapakkaskiptin fóru fram með hefðbundum hætti og Helga Haralds fékk verðalaunin, sem var nytjahlutir til notkunar við bútasauminn.
Nú tökum við því rólega fram yfir áramótin, þá hittumst við allar 10. janúar, hressar og endurnærðar eftir hátíðina.
Ekkert sérstakt á döfinni nema ræmuhappdrætti - sjá dagskrá.

04 desember 2007

Munið jólafundinn í kvöld

Kæru Búskur!

Munið eftir jólafundinum í kvöld, koma með litla gjöf með sér og eitthvað að sýna, anna sjáum við um.

Helga, Ebba, Anna Sigga og Jóhanna.

29 nóvember 2007

Ekkert til spillis - gæsir

Þetta er ferlega sniðugt þegar maður er að sauma gæsir, ekkert fer til spillis. Smellið á fyrirsögnina til að fá frekari upplýsingar.

Jólakötturinn


Skemmtileg blokk, jólakötturinn. Smelltu á fyrirsögnina til að ná þér í sniðið af mjása.

Jólafundurinn

Jæja þá fer að líða að jólafundinum okkar Búsknanna sem auðvitað verður haldinn á Löngumýri, næsta þriðjudag sem er 4. desember. Húsið verður opnað kl. 20:00.

Við aðalhöfðingjarnir, eða þannig, sjáum um te, kaffi, meðlæti og kertaljósin en þið komið með góða skapið og smá gjöf, heimagerða er nú skemmtilegast ef hægt er því það verða pakkaskipti til að auka spennuna. Og þar að auki verður happdrætti.

Um að gera að hafa meðferðis það sem þið hafið saumað að undanförnu til að sýna okkur hinum.
En umfram allt ætlum við að eiga notalega stund saman.

19 nóvember 2007

Myndir frá saumasunnudegi

Var að setja inn nokkrar myndir frá saumasunnudeginum síðasta en þar var boðið upp á námskeið í paper-piecing eða pappírs-saum.

Hvað er einn yard margir sentimetrar?

Ég fann þessa líku fínu síðu á netinu, var að vandræðast með að breyta yard í metra. Setti slóðina inn hérna til hægri, undir ÁHUGAVERT.

13 nóvember 2007

Ég fékk þennan póst frá Herdísi Kompukonu

"Kveðja til allra frá mér á næstu fundi hjá ykkur og þú mátt tilkynna það að ég verð með afslátt af bútasaumsefnum út þennan mánuð þe. nóvember. Ég set flest efnin sem ég á eftir á 40 % afslátt svo nú er um að gera og nýta sér tækifærið;-) Herdís"

12 nóvember 2007

KOMPAN

Heimasíða Herdísar í Kompunni komin inn hér til hægri undir "Bútasaumsverslanir"

Námskeið í pappírssaum - paper piecing

Námskeiðið í paper piecing hefst kl. 10:30 og stendur til 15:00 eða um það bil. Námskeiðið verður jólamiðað þ.e að hægt verði að nota bútana í eitthvað jólalegt.

Það sem þarf í þetta eru jólaefnisbútar af ýmsum stærðum og gerðum.
Gaman er að hafa efni sem hafa aðra áferð en venjuleg bútasaumsefni eins og t.d glansandi svo eitthvað sé nefnt.
Svo eru það venjuleg ar saumagræjur, ef einhverjar eiga litlar stikur sem eru sérstaklega fyrir paper piecing þá endilega að taka þær með (þær eru samt ekki nauðsynlegar)

Námskeiðið kosta kr. 2000 á konu.
Allir velkomnir, svo endilega takið með ykkur þessar konur sem hafa áhuga á bútasaum en ekki haft sig í að vera með. Ekki er nauðsynlegt að vera meðlimur í félaginu til að taka þátt í þessu námskeiði.

Hlökkum til að vera með ykkur þann 18. í jólaskapi og huggulegheitum. Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband.