16 apríl 2012

Saumað í kvöld

Sælar allar saumakonur.
Við ætlum að sauma í Tjarnabæ í kvöld.
Bíbí opnar húsið á slaginu í 19.30
Við sýnum ykkur að sjálfsögðu hvað við vorum að gera um helgina.
Kaffi á könnunni, sjáumst kv.

Ebba og Anna Sigga.

21 mars 2012

Næsti saumafundur

Sælar saumakonur,

Fyrir þær sem ekki voru með okkur í gærkveldi, eða voru farnar, þá var ákveðið að sauma næst mánudaginn 26.3. og svo mánudaginn 16.4.eftir páska.

Sendum aftur póst á föstudaginn og minnum á :) kv. Ebba og Anna Sigga.

19 mars 2012

Saumakvöld

Sælar allar saumakonur,.
Við saumum í Tjarnarbæ þriðjudagskvöldið 20. mars kl. 19.30
Kaffi á könnunni, sjáumst sem flestar.
kv. Ebba og Anna Sigga.

04 mars 2012

Saumakvöld

Við saumum mánudagskvöldið 5. mars kl. 19.30 í Tjarnarbæ.

Kaffi á könnunni.

Sjáumst sem flestar,

kv. Ebba og Anna Sigga.

20 febrúar 2012

Bútasaumspjall hjá Ebbu

Ebba bauð nokkrum konum til sín í bútasaumsspjall. Notalegt kvöld við saum, prjón, hekl, og aðdáun á verkunum. Takk fyrir okkur Ebba.
Næsti fundur verður að hálfum mánuði liðnum í Tjarnarbæ... eða er það ekki rétt Ebba?

03 febrúar 2012

Saumakvöld 6. febrúar

Sælar allar saumakonur,

nú saumum við í Tjarnarbæ á mánudagskvöld 6. feb.

Húsið opnar kl.19.30 og að sjálfsögðu verður kaffi á könnunni.

Sjáumst :)

kv. Ebba og Anna Sigga

20 janúar 2012

Saumakvöld

Sælar allar Búskur
Nú saumum við í Tjarnarbæ mánudaginn 23. janúar.
Húsið opnar kl. 19.30 og við saumum fram eftir kvöldi.
Það verður kaffi á könnunni.

Anna Sigga og Ebba.

05 nóvember 2011

Saumakvöld mánudaga

Búskurnar hittast til skrafs og sauma annað hvert mánudagskvöld í Tjarnarbæ kl. 19:30
Síðasta saumakvöld var 31. október svo næsta saumakvöld verður að hálfum mánuðum liðnum.

13 apríl 2011

Kvöldfundur Búsknanna

Saumað verður í Tjarnarbæ mánudaginn 2. maí 2011 kl.18:30

09 apríl 2011

Saumakvöld

Saumað í Tjarnarbæ mánudaginn 11. apríl 2011 kl. 18:30