25 febrúar 2011

Saumað í Tjarnarbæ

Bútasaumskonur

Nú saumum við aftur í Tjarnabæ, mánudaginn 28. febrúar 2011 kl 18:30

Kaffi verður á staðnum, ásamt strauborði og straujárni, mottu og stiku.

Kveðja Ebba


16 febrúar 2011

Veisla á Búskufundi

Við erum ekki alveg dauðar úr öllum æðum ennþá hérna í Skagafirðinum, átta konur mættu galvaskar til skrafs og sauma og Bíbí bauð upp á veislu.
Ekki amalegt það. Sjáumst aftur á næsta saumakvöldi.

08 febrúar 2011

Saumað í Tjarnarbæ

Saumakvöld verður í Tjarnabæ, félagsheimili hestamanna við hliðina á reiðhöllinni, mánudaginn 14 febrúar 2011 kl:18:30 -22:30

Kaffi verður á staðnum.

Verið þið nú duglegar að mæta og sýna okkur hvað þið eruð og hafið verið að gera

Kveðja Ebba

07 október 2010

Fyrsti fundurinn

Komar nýjar myndir inn á síðuna frá fyrsta Búskufundi haustsins 20. september.

20 september 2010

Fundur mánudag 20. sept kl. 18:30

Fyrsti fundur vetrarins verður á Löngumýri mánudaginn 20. september k. 18:30

Næstu fundir;
mánudagur 4. október kl. 18:30
mánudagur 15. nóvember kl. 18:30
Saumasunnudagur 21. nóvmber kl. 10:- 16:00 - ef áhugi er fyrir hendi.

Við ræðum starfið og setjum upp dagskrá vetrarins á þessum fyrsta fundi, nýjar hugmyndir eru vel þegnar.

Kveðja Ebba

04 mars 2010

Myndir

Loksins búin að koma inn myndum frá síðasta fundi.

17 febrúar 2010

Kvöldfundur 17. febrúar

Næsti fundur verður miðvikudaginn 17. febrúar á Löngumýri, húsið opnar kl. 18:30 að venju.
Takið með ykkur saumavélina eða það sem þið eruð að vinna að, smáræði í gogginn, góða skapið og eigum notalega saumastund eins og svo oft áður.

30 nóvember 2009

Myndir

Það eru komnar inn nokkrar myndir frá kvöldfundinum síðasta, við vorum bara 5 en áttum góða stund.

18 nóvember 2009

Frestun saumasunnudags

Sælar kæru Búskur!

Af óviðráðanlegur orsökum verður við að hætta við saumasunnudaginn sem vera átti næstkomandi sunnudag 22. nóvember.
Þess í stað verður venjulegur saumafundur mánudaginn 23. nóvember - húsið verður opnað kl. 18:30

Vonumst til að sjá sem flestar.
Kveðja, Jóhanna, Helga B, Anna Sigga og Ebba.