Þriðjudagur 16. september - kl: 19:00 - 23:00 kvöldfundur á Löngumýri.Fyrsti fundur haustsins.
Við setjum upp dagskrá vetrarins, tillögur og nýjar hugmyndir að dagskrá næsta vetrar vel þegnar. Kaffi og meðlæti verður í boði félagsins á þessum fyrsta fundi.
Sýna og segja frá.
Þriðjudagur 30. september - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.Hefðbundinn kvöldfundur, fattarahappdrættir. Komið með 2 fattara (45x56) til að leggja í púkkið. Dregið verður úr potti. Sýna og segja frá.
Fimmtudagur 23. október - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.
Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga. Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði. Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar. Sýna og segja frá.
Þriðjudagur 11. nóvember - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.Hefðbundinn kvöldfundur. Sýna og setja frá.
Sunnudagur 23. nóvember - kl: 10:00 - 16:00 saumasunnudagur á Löngumýri.Við opnum húsið k. 10:00 en frjálst er að mæta þegar hverjum og einum hentar. Byrjað verður á að draga sér leynivin fyrir daginn, nánari útskýringar síðar. Við verðum með léttan mat í hádeginu, súpu, brauð, græmneti, ávexti, etv. heitan rétt. Alltaf heitt á könnunni. Sýna og segja frá.
Mánudagur 8. desember - kl: 20:00 - 22:00 jólafundur á Löngumýri.Breyting: Gunnar hafði tvíbókað daginn, svo við þurftum að færa fundinn fram um einn dag.Við komum saman á Löngumýri, höfum með okkur litla innpakkaða gjöf, skemmtilegast eitthvað heimatilbúið eða tengt bútasaum en halda verði í lágmarki. Eigum huggulega stund við kertaljós og góðgæti. Nánar síðar. Sýna og segja frá.
Þriðjudagur 20. janúar - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.Breyting: Gunnar fékk bókun á alla vikuna, svo við þurftum að færa fundinn aftur um eina viku.
Hefðbundinn afslappaður kvöldfundur eftir jólin, sýna og segja frá.
Þriðjudagur 10. febrúar - kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.Byrjendanámskeið í bútasaum fyrir nýja félaga ef þátttaka. Útbúinn verður pakkning með öllu sem til þarf í lítið verkefni og selt á kostnaðarverði. Þeir sem áhuga hafa á kennslu skrái sig hjá einhverri okkar. Sýna og segja frá.
Sunnudagur 15. mars- kl: 9:00 - 17:00 saumasunnudagur á Löngumýri.Við opnum húsið k. 9:00 en frjálst er að mæta þegar hverjum og einum hentar. Við borðum á Hótel Varmahlíð hjá Svönu í hádeginu kr. 2,500 fyrir manninn. Enginn annar kostnaður við saumadaginn, nema ef konur vilja hafa með sér millibita eða einskonar morgunverð og með síðdegiskaffinu. Alltaf heitt á könnunni. Sýna og segja frá.
Þriðjudagur 31. mars- kl: 18:30 - 22:30 kvöldfundur á Löngumýri.Síðasti hefðbundni fundurinn á saumaárinu. Sýna og segja frá.
Laugadagur 9. maí - LokafundurDagsferð, nokkrar hugnyndir hafa komið fram, við vinnu úr þeim, nánar síðar.