29 nóvember 2007

Ekkert til spillis - gæsir

Þetta er ferlega sniðugt þegar maður er að sauma gæsir, ekkert fer til spillis. Smellið á fyrirsögnina til að fá frekari upplýsingar.

Jólakötturinn


Skemmtileg blokk, jólakötturinn. Smelltu á fyrirsögnina til að ná þér í sniðið af mjása.

Jólafundurinn

Jæja þá fer að líða að jólafundinum okkar Búsknanna sem auðvitað verður haldinn á Löngumýri, næsta þriðjudag sem er 4. desember. Húsið verður opnað kl. 20:00.

Við aðalhöfðingjarnir, eða þannig, sjáum um te, kaffi, meðlæti og kertaljósin en þið komið með góða skapið og smá gjöf, heimagerða er nú skemmtilegast ef hægt er því það verða pakkaskipti til að auka spennuna. Og þar að auki verður happdrætti.

Um að gera að hafa meðferðis það sem þið hafið saumað að undanförnu til að sýna okkur hinum.
En umfram allt ætlum við að eiga notalega stund saman.

19 nóvember 2007

Myndir frá saumasunnudegi

Var að setja inn nokkrar myndir frá saumasunnudeginum síðasta en þar var boðið upp á námskeið í paper-piecing eða pappírs-saum.

Hvað er einn yard margir sentimetrar?

Ég fann þessa líku fínu síðu á netinu, var að vandræðast með að breyta yard í metra. Setti slóðina inn hérna til hægri, undir ÁHUGAVERT.

13 nóvember 2007

Ég fékk þennan póst frá Herdísi Kompukonu

"Kveðja til allra frá mér á næstu fundi hjá ykkur og þú mátt tilkynna það að ég verð með afslátt af bútasaumsefnum út þennan mánuð þe. nóvember. Ég set flest efnin sem ég á eftir á 40 % afslátt svo nú er um að gera og nýta sér tækifærið;-) Herdís"

12 nóvember 2007

KOMPAN

Heimasíða Herdísar í Kompunni komin inn hér til hægri undir "Bútasaumsverslanir"

Námskeið í pappírssaum - paper piecing

Námskeiðið í paper piecing hefst kl. 10:30 og stendur til 15:00 eða um það bil. Námskeiðið verður jólamiðað þ.e að hægt verði að nota bútana í eitthvað jólalegt.

Það sem þarf í þetta eru jólaefnisbútar af ýmsum stærðum og gerðum.
Gaman er að hafa efni sem hafa aðra áferð en venjuleg bútasaumsefni eins og t.d glansandi svo eitthvað sé nefnt.
Svo eru það venjuleg ar saumagræjur, ef einhverjar eiga litlar stikur sem eru sérstaklega fyrir paper piecing þá endilega að taka þær með (þær eru samt ekki nauðsynlegar)

Námskeiðið kosta kr. 2000 á konu.
Allir velkomnir, svo endilega takið með ykkur þessar konur sem hafa áhuga á bútasaum en ekki haft sig í að vera með. Ekki er nauðsynlegt að vera meðlimur í félaginu til að taka þátt í þessu námskeiði.

Hlökkum til að vera með ykkur þann 18. í jólaskapi og huggulegheitum. Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband.

05 nóvember 2007

Munið eftir saumasunnudeginum á Löngumýri

18. nóvember 2007 kl: 10:00 – 16:00 saumasunnudagur á Löngumýri - Jólaþema

Helga Friðbjörns og Svana ætla að vera með námskeið í Paper Piecing – og kenna okkur að búa til lítil sniðug smástykki sem tengjast jólunum. Við fáum seiðandi súpu og gullið salat í hádegisverð.
Þið þurfið að skrá ykkur hjá einhverri okkar fyrir föstudaginn 16. nóv. svo við höfum einhverja hugmynd um fjölda í mat.

30 október 2007

Tilkynning frá Þórdísi á bókasafninu á Króknum

Á bókaafnið er komið dálítið af nýjum handavinnubókum, þ.á.m. slatti af bútabókum og fleiri á leiðinni. Þær eru allar á 10 daga láni, svona til að byrja með.

Kveðja
Þórdís